Styrkþegar "Virkjum Breiðholt" 2026

4. september 2026

Alls sóttu 6 verkefni í styrktarsjóð Virkjum Breiðholts sumarið 2026. Af þessum 6 verkefnum mun sjóðurinn styrkja 5 þeirra í samvinnu með Íþrótta og Tómstundaverkefni Reykjavíkurborgar fyrir heildarfjárhæð að 15,361,000 krónur. Þessi 5 verkefni stefna öll að því að færa tómstundastarf í stærra magni inn í nærumhverfi yngstu barnanna í grunnskólum í Breiðholti. 

Handknattleiksdeild ÍR - Styrktarbeiðni fyrir útbreiðsluverkefni upp á 3.000.000 krónur.

Handknattleiksdeild ÍR stefnir á að umturna útbreiðslustarfi sínu í efra-Breiðholti sem og bökkunum. Undanfarin ár hefur iðkendafjöldi af þessum svæðum verið sáralítill og ljóst er að það þarf aukna útbreiðslu og inngrip til þess að ná til barnanna.

Handknattleiksdeildin sækist því eftir styrk sem gerir deildinni kleift að halda úti handboltaæfingum fyrir 1.-4.bekk í Breiðholt-Hólabrekku og Fellaskóla. Útbreiðsluverkefnið snýr að því að börn úr þessum skólum geti æft handknattleik hjá ÍR þeim að kostnaðarlausu (fyrir utan frístundastyrk), bæði í sínu nærumhverfi, auk þess að geta sótt aðrar æfingar sem fara fram á félagssvæði ÍR.

Arnar Freyr Guðmundsson, yfirþjálfari handknattleiksdeildar ÍR, hefur umjón með verkefninu

ÍR Fótbolti - Styrktarbeiðni fyrir útbreiðsluverkefni upp á 3.761.000 krónur.

Styrkur er veittur fyrir skólaæfingum í 1. og 2. bekk í þremur skólum í hverfinu svo þjálfarar frá Knattspyrnudeild ÍR geti haldið úti æfingum í íþróttahúsum skólanna. Jafnframt verður haldið úti sérstökum Breiðholtsskóla-æfingum fyrir börn í 3. og 4. bekk ásamt stóraukinni þjónustu við börn og foreldra í Breiðholtsskóla þar sem þátttaka barna í skipulögðu íþróttastarfi er slökust.

Halldór Arnarsson, yfirþjálfari yngri flokka Fótboltadeildar ÍR, hefur umsjón með verkefninu

Tónskóli Eddu Borg og Félag Íslenskra Hljómlistarmanna - Styrktarbeiðni fyrir hljóðfæranámi í Breiðholtsskóla upp á 2.800.000 krónur.

Metnaður tónlistarskólans er að veita sem flestum tækifæri á að njóta þess að kynnast tónlist, styrkja sig félagslega og kynnast hljóðfæranámi. Það er margreynt að tónlistariðkun er frábær leið til að mynda tengsl á milli ólíkra hópa. Því mun Tónlistarskólinn bjóða upp á hljóðfæranám í samstarfi við stjórnendur Breiðholtsskóla fyrir börn á miðstigi. Skólinn mun bjóða upp á kennslu á allskonar hljóðfæri ásamt kennslu á forrit líkt og GarageBand.

Edda Borg, Skólastjóri TEB, hefur umsjón með verkefninu

Tónskóli Eddu Borg og Félag Íslenskra Hljómlistarmanna - Styrktarbeiðni fyrir Kórastarfi upp á 2.800.000 krónur.

Metnaður tónlistarskólans er að veita sem flestum tækifæri á að njóta þess að kynnast tónlist, styrkja sig félagslega og viðhalda sterkri sönghefð frá unga aldri. Það er margreynt að tónlistariðkun er frábær leið til að mynda tengsl á milli ólíkra hópa. Tónlistariðkun og samsöngur eflir og þroskar nemandann og gerir hann félagslega sterkan. Verkefnið mun standa að stofnun skólakóra í grunnskólum í Breiðholti þar sem meðal annars verður unnið að því að kynna íslensk dægurlög og efla íslenskukunnáttu barnanna, veita tækifæri fyrir börn að læra að koma fram á tónleikum, og að efla samstarf innan hópa. 

Edda Borg, Skólastjóri TEB, hefur umsjón með verkefninu

Júdó Samband Íslands- Styrktarbeiðni fyrir uppbyggingu Júdóstarfs í Efra Breiðholti upp á 3.000.0000 krónur.

Sýn verkefnisins er að öll börn í Efra-Breiðholti hafi raunhæft tækifæri til að stunda júdó í sínu nærumhverfi og njóta þeirra jákvæðu áhrifa sem íþróttin hefur á heilsu, sjálfstraust, virðingu, félagsfærni og samfélagsþátttöku. Verkefnið verður unnið af Júdósambandi Íslands í samstarfi við Júdódeild ÍR og aðra samstarfsaðila sem koma að uppbyggingu júdóstarfs í Efra-Breiðholti. Sérstök áhersla verður lögð á að ná til barna sem ekki hafa áður tekið þátt í skipulögðu íþróttastarfi, barna af tekjulægri heimilum og barna af fjölbreyttum tungumála- og menningarbakgrunni. 

Gísli Fannar Egilson, formaður JSÍ og meðstjórnandi júdódeildar ÍR, hefur umsjón með verkefninu

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna