Vel á annað hundrað manns komu saman á Grand Hótel fimmtudaginn 19. nóvember til að ræða raunverulegt virði íþróttastarfs barna og hvert stefna ætti í framtíðinni. Ráðstefnan var haldin að frumkvæði svæðisstöðva íþróttahéraða, Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH).
Ráðstefnan fjallaði um stöðu og framtíð íþróttastarfs barna á Íslandi, meðal annars í ljósi hækkandi æfingagjalda, kostnaðar við búnað og keppnisferðir og aukinna krafna um fagmennsku í starfinu.
Sjö fyrirlesarar með ólíka reynslu og sýn á íþróttahreyfinguna deildu þekkingu sinni og reynslu og veittu gestum innsýn í stöðuna í dag, þær áskoranir sem blasa við og mögulegar leiðir til að þróa starfið áfram.
Fyrirlesararnir voru:
- Daði Rafnsson, fagstjóri afrekssviðs MK
- Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdastjóri Aftureldingar
- Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður
- Pálmar Ragnarsson, körfuknattleiksþjálfari
- Rakel Dögg Bragadóttir, handknattleikskona og foreldri
- Sólný Pálsdóttir, foreldri
- Viðar Halldórsson, prófessor við Háskóla Íslands
Undirtektir við ráðstefnunni fóru fram úr björtustu vonum skipuleggjenda og var ánægjulegt að sjá hversu margir lögðu leið sína á Grand Hótel til að taka þátt í umræðunni.
Aðstandendur ráðstefnunnar þökkuðu öllum gestum og fyrirlesurum fyrir þátttökuna og lögðu áherslu á mikilvægi þess að halda samtalinu áfram. Íþróttir eiga að vera fyrir öll börn og því er sameiginlegt verkefni íþróttahreyfingarinnar og samfélagsins alls að finna leiðir til að tryggja að svo verði áfram.
Ráðstefnan markaði mikilvægt skref í samtalinu um framtíð íþróttastarfs barna og hvernig hægt er að byggja áfram upp öflugt og aðgengilegt íþróttastarf þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín.
Hægt er að horfa á ráðstefnuna hér.








