Íþróttabandalag Reykjavíkur óskar eftir ábendingum um íþróttafólk sem hefur náð framúrskarandi árangri á árinu 2026.
Íþróttastjarna Reykjavíkur er valin af stjórn ÍBR og viljum við heyra frá ykkur ef þið þekkið til íþróttafólks í Reykjavík sem hefur skarað fram úr á árinu. Við hvetjum íþróttafélög, iðkendur og aðra velunnara íþróttahreyfingarinnar til að senda okkur ábendingar um árangur sem vert er að vekja athygli á.
Auk þess mun stjórn ÍBR velja Íþróttafélag Reykjavíkur 2026.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 17. desember næstkomandi.
Við hlökkum til að heyra frá ykkur og fá að fagna framúrskarandi árangri íþróttafólks í Reykjavík á árinu 2026.









