Mánudaginn síðastliðinn hélt ÍBR með vaskan hóp til Kaupmannahafnar á grunnskólamót höfuðborga norðurlandanna. Keppt er í knattspyrnu stúlkna, handknattleik drengja og í báðum kynjum í frjálsíþróttum.
Gengið hefur vel og skemmst er frá því að segja að knattspyrnuliðið okkar hefur unnið báða sína leik, 8-0 gegn heimakonum í Kaupmannahöfn á þriðjudag og 3-1 gegn Osló í dag.
Handknattleiksliðið okkar byrjaði á naumu tapi gegn heimamönnum í Kaupmannahöfn 16-19 en í dag sigruðu strákarnir öflugt lið Osló 30-27.



