Úrslit úr nýafstaðinni keppni á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna sem haldið var í Kaupmannahöfn eru komin og það er okkur mikil ánægja að tilkynna að bæði stúlknaliðið og drengjaliðið enduðu í fyrsta sæti í heildarstigakeppninni. Keppt var í þremur greinum, handbolta, fótbolta og frjálsum íþróttum. Stúlkurnar unnu gull í fótbolta eftir 2 sigra og eitt jafntefli og drengirnir hlutu silfur í handbolta. Bæði stúlkna og drengja liðið í frjálsum íþróttum unnu sínar keppnir. Um er að ræða glæsilegan árangur sem endurspeglar miklar framfarir, góða liðsheild og samheldni innan hópsins.
Helstu úrslit einstaklinga:
- Langstökk:
Tómas sigraði í langstökki með stökk upp á 5,69 metra.
Sigrún bar einnig sigur úr býtum í langstökki stúlkna með 4,99 metra stökk. - Kúluvarp:
Herdís vann stúlknaflokkinn með 9,70 metra kasti.
Guðjón hafnaði í öðru sæti hjá drengjum með 10,81 metra kast. - Hástökk:
Sigurður sigraði í hástökki með 1,64 metra stökk.
Sigrún náði þriðja sæti hjá stúlkum með stökk upp á 1,45 metra og Úlfur hafnaði í þriðja sæti hjá drengjum með 1,55 metra stökk. - 100 metra hlaup:
Sigurður sigraði með tímann 11,55 sekúndur og Tómas varð annar með 12,25 sekúndur.
Emilía hlaut þriðja sætið í stúlknaflokki með tímann 13,47 sekúndur. - 800 metra hlaup:
Tómas sigraði með tímann 2:25,5 og Guðjón varð þriðji með 2:30,0.
Heildarniðurstaðan endurspeglar mikinn metnað og elju þátttakenda. Keppendur stóðu sig með prýði og voru bæði landi sínu, borg og skóla sínum til mikils sóma.
Keppendur á mótinu voru eftirfarandi:
- Anna Viktoria H. Dyrhauge (Knattspyrna) – Hagaskóli / KR
- Embla Lind Manuelsdóttir Plasencia (Knattspyrna) – Laugalækjarskóli / Þróttur
- Emelía Káradóttir (Knattspyrna) – Árbæjarskóli / Fylkir
- Eyrún Björg Benediktsdóttir (Knattspyrna) – Dalsskóli / Fram
- Jara Magnúsdóttir (Knattspyrna) – Réttarholtsskóli / Víkingur
- Karen Dís Vigfúsdóttir (Knattspyrna) – Norðlingaskóli / Fylkir
- Kristín Birna Steinarsdóttir (Knattspyrna) – Norðlingaskóli / Fylkir
- Kristín Laufey Ingólfsdóttir (Knattspyrna) – Hagaskóli / KR
- Ragnheiður Björk Ragnarsdóttir (Knattspyrna) – Hólabrekkuskóli / ÍR
- Saga Björgvinsdóttir (Knattspyrna) – Langholtsskóli / Þróttur
- Salka Ólafsdóttir (Knattspyrna) – Hagaskóli / KR
- Sveinbjörg Lára Viggósdóttir (Knattspyrna) – Hlíðarskóli / Valur
- Theódóra Ólöf Sigurbjörnsdóttir (Knattspyrna) – Rimaskóli / Fjölnir
- Una María Þórhallsdóttir (Knattspyrna) – Réttarholtsskóli / Víkingur
- Unnur Ýja Erlendsdóttir (Knattspyrna) – Réttarholtsskóli / Víkingur
- Róbert Þór Ólason (Handknattleikur) – Sæmundarskóli / Fram
- Stefán Eggertsson (Handknattleikur) – Sæmundarskóli / Fram
- Heiðar Berg Brynjarsson (Handknattleikur) – Dalskóli / Fram
- Gunnar Björn Ólafsson (Handknattleikur) – Árbæjarskóli / Fylkir
- Steinar Þór Oddsson (Handknattleikur) – Árbæjarskóli / Fylkir
- Arnar Þór Ólafsson (Handknattleikur) – Ölduselsskóli / ÍR
- Kári Halldórsson (Handknattleikur) – Háteigsskóli / Valur
- Stefán Snæland Hafsteinsson (Handknattleikur) – Hlíðarskóli / Valur
- Stefán Arason (Handknattleikur) – Hlíðarskóli / Valur
- Stefán Hrafn Högnason (Handknattleikur) – Réttarholtsskóli / Víkingur
- Herdís Askja Hermannsdóttir (Frjálsar) – Vogaskóli / Ármann
- Sigrún Lind Garðarsdóttir (Frjálsar) – Vogaskóli / Ármann
- Emilía Ólöf Jakobsdóttir (Frjálsar) – Seljaskóli / ÍR
- Eva Unnsteinsdóttir (Frjálsar) – Húsaskóli / Fjölnir
- Sonja Björt Birkisdóttir (Frjálsar) – Norðlingaskóli / ÍR
- Edith Anna Theodórsdóttir (Frjálsar) – Langholtsskóli / Ármann
- Sigurður Ari Orrason (Frjálsar) – Réttarholtsskóli / ÍR
- Tómas Ingi Kermen (Frjálsar) – Réttarholtsskóli / ÍR
- Guðjón Steinar Árnason (Frjálsar) – Árbæjarskóli / ÍR
- Halldór Kossi Ange Tryggvason (Frjálsar) – Laugalækjarskóli / Ármann
- Jacob Arne Carlsson (Frjálsar) – Vogaskóli / Ármann
- Úlfur Martino Solimene (Frjálsar) – Laugalækjarskóli / Ármann
Þjálfarar og farastjórar á mótinu voru eftirfarandi:
- Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir (Fararstjóri)
- Jakob Leó Bjarnason (Fararstjóri)
- Hörður Grétar Gunnarsson (Frjálsar)
- Margrét (Frjálsar)
- Rakel Logadóttir (Knattspyrna)
- Magnús Kári Jónsson (Handknattleikur)



