Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs boðar til kynningafunda

26. október 2021

Kynningarherferð verður næsta mánuðinn um allt land um starf samskiptaráðgjafa og leiðirnar til að tryggja öruggt umhverfi í íþrótta- og æskulýðsstarfi.   

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs mun kynna starfið á næstu dögum og verða kynningarfundir haldnir víðsvegar um landið á næstu vikum.

Markmið með starfi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs er að slíkt starf fari fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað öruggt íþrótta- eða æskulýðsstarf. Þau geti leitað sér aðstoðar eða réttar sína án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar. Með atvikum og misgerðum er átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik.

Í október og nóvember næstkomandi mun samskiptaráðgjafi ferðast um landið og kynna starfsemina fyrir íþrótta- og æskulýðsfélögum.

Dagskráin:

  • Kynning á starfi samskiptaráðgjafa.
  • Kynning á öflun upplýsinga úr sakaskrá.
  • Kynning á vinnu við samræmingu viðbragðsáætlana vegna atvika og misgerða.

Kynningarnar verða á eftirtöldum stöðum og dagsetningum í Reykjavík og nágrenni:

  • Kópavogur mánudaginn 8. nóvember. Kórinn kl.17:00
  • Reykjavík mánudaginn 15. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.17:00
  • Reykjavík þriðjudaginn 16. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.13:00
  • Reykjavík miðvikudaginn 17. nóvember. ÍSÍ Engjavegi 6, Fundarsalur E kl.19:00
  • Hafnarfjörður miðvikudaginn 24. nóvember. Kaplakriki, Sjónarhóll salur kl.17:00

UMFÍ og ÍBR hvetur sambandsaðila og aðildarfélög þeirra til að mæta á kynningarfundina um allt land.

Frekari upplýsingar á heimasíðu samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna