Sakavottorð - upplýsingar

21. september 2020

Samkvæmt íþróttalögum er óheimilt að ráða til starfa hjá íþróttahreyfingunni einstaklinga sem hafa hlotið refsidóm vegna ofbeldisbrota, ávana- og fíkniefna eða kynferðisbrota. Þetta gildir bæði um þá einstaklinga sem starfa sem launþegar og sem sjálfboðaliðar.  

Íþróttafélög geta ýmist fengið starfsmenn sína, þjálfara eða sjálfboðaliða til að skila inn sakavottorði eða fengið skriflegt leyfi þeirra til að leita eftir upplýsingum úr sakaskrá. Heimildin veitir félögum rétt til að sækja gögn vegna ofbeldisbrota og vegna ávana- og fíkniefnabrota, 3-5 ár aftur í tímann, og einnig vegna kynferðisbrota, en þar gilda engin tímamörk.

Samstarfsaðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna