Frábær þátttaka í Norðurljósahlaupi ON 2026!

7. febrúar 2026

Norðurljósahlaup ON 2026 fór fram í kvöld, 7. febrúar, í miðbæ Reykjavíkur. Þetta 4-5 km skemmtiskokk var hluti af Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar og bauð þátttakendum að upplifa borgina í nýju ljósi, þar sem helstu kennileiti voru upplýst í tilefni hátíðarinnar. Á leiðinni voru skemmtistöðvar með ljósum og tónlist, sem sköpuðu einstaka upplifun fyrir alla aldurshópa.

Dagskrá hófst klukkan 18:00 í Listasafni Reykjavíkur, þar sem rapparinn Emmsjé Gauti hitaði upp hlaupara með tónlist sinni. Hlaupið hófst síðan klukkan 19:00, og þátttakendur fengu sérstakan skráningarpakka sem innihélt hlaupanúmer, glaðning frá 66° Norður, armband sem blikkaði í takt við tónlistina og túpu af andlitsmálningu, sem gerði þeim kleift að vera hluti af ljósasýningunni og stuðlaði að skemmtilegri stemningu.

Þetta er fyrsta árið þar sem Orka Nátttúrunnar er aðalstyktaraðili hlaupsins og færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn. Einnig viljum við þakka þátttakendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem komu að því að gera þetta eftirminnilega hlaup að veruleika.

Sjáumst á næsta ári!

Ljósmyndir: Bjarni Baldursson

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna