Miðnæturhlaup Suzuki 2026 fór fram í Laugardal í kvöld. Um 2500 hlauparar lögðu upp frá Engjavegi og enduðu við Þvottalaugarnar í Laugardal, en keppt var í þremur vegalengdum, hálfmaraþoni, tíu kílómetrum og fimm kílómetrum. Það skiptist á skini og skúrum í kvöld en sólin lét sjá sig þegar það skipti máli. Þrátt fyrir veðurskiptin skartaði Laugardalurinn sínu fegursta í kvöld og tók vel á móti þreyttum en glöðum hlaupurum.
Keppendur frá 66 löndum
Af rúmlega 2500 skráðum þátttakendum voru hlauparar frá 66 mismunandi löndum, flestir erlendir frá Bandaríkjunum og svo frá Bretlandi og Kanada. Yfir helmingur skráðra þátttakenda voru konur eða 1298. 1068 karlar voru skráðir og 8 kvár.
Arnar Pétursson var fljótastur allra karla í hálfmaraþoninu, en hann hljóp á tímanum 01:10:23 en það er rúm mínútubæting frá því á síðasta ári þegar Arnar sigraði einnig hálfmaraþon karla. Í kvennaflokki var Fanny Josefine Ahlfors frá Svíþjóð fljótust á tímanum 01:23:07, en það er gaman að segja frá því að Fanny var einnig sérstakur sendiherra hlaupsins. Í tíu kílómetra hlaupinu kom Íris Anna Skúladóttir fyrst í mark í kvennaflokki á tímanum 36:44 en hún bætti tímann sinn frá því á síðasta ári um tæpar tvær mínútur þegar hún sigraði einnig 10km hlaup kvenna. Stefán Kári Smárason kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 33:50, en hann sigraði einnig 10km hlaup karla á síðasta ári. Sindri Dagur Birnisson var svo allra karla sneggstur í fimm kílómetra hlaupinu á tímanum 16:29. Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir var sneggst kvenna á tímanum 18:30. Boðið var upp á keppni í kváraflokki í öllum vegalengdum, en ekki náðist fjöldi til keppni.
Sundlaugarpartý að loknu hlaupi
Að hlaupi loknu gæddu þreyttir en glaðir þátttakendur sér á hressingu áður en haldið var í sundlaugapartý í Laugardalslaug. Við þökkum þátttakendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum kærlega fyrir og hlökkum til að sjá sem flest aftur á næta ári.










