Miðnæturhlaup Suzuki 2025

20. júní 2025

Miðnæturhlaup Suzuki 2025 fór fram í Laugardal í gær, fimmtudagskvöldið 19. júní. Rúmlega 2600 hlauparar lögðu upp frá Engjavegi og enduðu við Þvottalaugarnar í Laugardal, en keppt var í þremur vegalengdum, hálfmaraþoni, tíu kílómetrum og fimm kílómetrum. Veðrið í kvöld var hreint útsagt frábært og tók sólin á móti þreyttum en glöðum hlaupurum.

Keppendur frá 67 löndum

Af rúmlega 2600 skráðum þátttakendum voru hlauparar frá 67 mismunandi löndum, flestir erlendir frá Bandaríkjunum og svo frá Bretlandi og Þýskalandi. 1486 konur, voru skráðar í hlaupið, 1111 karlar, 4 kvár og 7 í ókyngreindum flokki. 

Arnar Pétursson var fljótastur allra karla í hálfmaraþoninu, en hann hljóp á tímanum 01:11:54. Í kvennaflokki var Idelma Lizeth Delgado frá El Salvador fyrst í mark á tímanum 01:23:18. Í tíu kílómetra hlaupinu kom Íris Anna Skúladóttir fyrst í mark í kvennaflokki á tímanum 38:25, en Stefán Kári Smárason kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 33:08. Kristinn Þór Kristinsson var svo allra karla sneggstur í fimm kílómetra hlaupinu á tímanum 16:05. Andrea Kolbeinsdóttir var sneggst kvenna, á tímanum 16:18. Boðið var upp á keppni í kváraflokki í öllum vegalengdum, en ekki náðist fjöldi til keppni.

Sundlaugapartý að loknu hlaupi

Að hlaupi loknu gæddu þreyttir en glaðir þátttakendur sér á hressingu áður en haldið var í sundlaugapartý í Laugardalslaug. Við þökkum þátttakendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum kærlega fyrir og hlökkum til að sjá sem flest aftur á næta ári.

Myndir: Bjarni Baldursson

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna