Við erum einstaklega auðmjúk og stolt að getað sagt að í ár er metskráning í Laugavegshlaupið 2025. Það stefnir í sannkallaða hlaupaveislu þann 12. júlí, 2025!
Við erum byrjuð að fara yfir skráningarnar og þann 20. nóvember n.k. munum við tilkynna hverjir komust í Laugavegshlaupið. Sæti verða í boði fyrir stigahæstu hlauparana í fyrstu sæta úthlutuninni og verður þetta skipt jafnt á milli kynja.
Þau sem ekki fá sæti í fyrstu úthlutun fara í lóttóið sem dregið verður úr. Þau sem ekki fá úthlutun í lottóinu eiga enn möguleika að komast í hlaupið þar sem þau fara sjálfkrafa á biðlista.
Allar upplýsingar um skráningarfyrirkomulagið má finner hér.
Íþróttabandalag Reykjavíkur þakkar kærlega fyrir þann mikla áhuga sem þið hafið sýnt Laugavegshlaupinu 2025