Í fyrsta sinn verður Laugavegshlaupið sýnt í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans. Hlaupið verður aðgengilegt sem sérstakur viðburður í Sport möppu Símans og hefst útsending kl. 11:30.
Markmiðið er að færa einum vinsælasta utanvegahlaupaviðburði landsins nær öllum þeim sem vilja fylgjast með keppninni, hvort sem það eru aðstandendur, hlaupaáhugafólk eða aðrir sem vilja upplifa einstaka stemningu Laugavegshlaupsins.
Einnig verður hægt að fylgjast með hlaupinu í streymi á öðrum miðlum. Nánari upplýsingar um þá útsendingu verða kynntar á næstu dögum.
Arnar Pétursson verður lýsandi
Það er okkur sannur heiður að tilkynna að Arnar Pétursson verður lýsandi í beinu útsendingunni.
Arnar þarf vart að kynna fyrir hlaupaáhugafólki. Auk þess að hafa unnið fjölda Íslandsmeistaratitla á hann tvo af tíu bestu tímum í sögu Laugavegshlaupsins. Besti árangur hans kom árið 2023 þegar hann sigraði hlaupið á tímanum 4:00:48, sem er jafnframt næstbesti tími sem náðst hefur í sögu Laugavegshlaupsins.
Með reynslu sinni sem afrekshlaupari og djúpri þekkingu á hlaupinu mun Arnar færa áhorfendum einstaka innsýn í keppnina og það sem gerist á leiðinni frá Landmannalaugum til Þórsmerkur.







