Hver er íþróttaeldhugi ársins 2026?

16. nóvember 2026

Íþróttaeldhugi ársins verður tilnefndur samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins 2026. Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir þessari tilnefningu.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember,  hér á heimasíðu ÍSÍ. Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna  að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu, sitja í stjórnum eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina.

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við alla þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar” segir Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ.

Sérstök valnefnd er skipuð fyrrum afreksíþróttafólki, en þau eru: Þórey Edda Elísdóttir formaður, Einar Ólafsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2026. Íþróttaeldhugi ársins 2026 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

 

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna