Miðnæturhlaup Suzuki 2025 fer fram þann 19. júní.
Hlauparar á öllum aldri og getustigum fá að upplifa einstaka stemningu, kyrrð sumarnæturinnar, og adrenalínið sem aðeins kemur þegar þú hleypur undir miðnætursól. Þetta er ekki bara hlaup, þetta er upplifun.
Hlaupið er tilvalið fyrir alla fjölskylduna en boðið er upp á þrjár vegalengdir. 5km, 10km og hálfmaraþon(21,1km). Upphaf og endir allra vegalengdanna er í Laugardalnum. Hlaupin hefjast á Engjavegi og allir hlauparar koma í mark við Þvottalaugarnar. Hlaupabrautin er mæld samkvæmt stöðlum AIMS (alþjóðleg samtök hlaupa).
Að loknu hlaupi fá öll medalíu og eftir það er tilvalið fyrir þreytta hlaupara að láta þreytuna líða úr sér í sundlaugapartýi í Laugardalslaug þar sem boðið verður upp á drykki frá Ölgerðinni á meðan að DJ Gugga sér um stuðið.
Dagskrá hlaupsins má nálgast hér.
Skráning í hlaupið fer fram hér.
Fylgstu með hlaupinu á samfélagsmiðlum hlaupsins. Facebook og Instagram
Sjáumst í Laugardalnum!