Frábær aðsókn var í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fór fram síðastliðinn laugardag. Það skiptist á skini og skúrum, en aðallega skúrum, en glaðir hlauparar létu rigninguna ekki á sig fá. Skráðir þátttakendur voru rúmlega 16.000, þar af rúmlega 3.000 erlendir hlauparar frá yfir 90 mismunandi þjóðlöndum. Gríðarlega mikil stemning var í miðbænum og fögnuðu áhorfendur vel og mikið fyrir þreyttum hlaupurum sem komu í mark.
Leikar fóru þannig að í maraþoni kvenna sigraði Marion Tibar frá Eistlandi á tímanum 02:57:49. Hreint út sagt frábær árangur. Í öðru sæti var Annette Leistad frá Noregi og í þriðja sæti var Megan Rose Seibel frá Bandaríkjunum. Fljótasta íslenska konan í maraþoninu var Kristjana Pálsdóttir á tímanum 03:05:07.
Í maraþoni karla sigraði Austurríkismaðurinn Michael Bidmon á tímanum 02:21:36. Í öðru sæti var Arnar Pétursson frá Íslandi og í þriðja sæti var Silviu Stoica frá Rúmeníu, en hann hafði unnið hlaupið árið 2023.
Í hálfmaraþoni kvenna sigraði Elín Edda Sigurðardóttir á tímanum 01:23:38, en í öðru sæti var Hildur Aðalsteinsdóttir og í þriðja sæti var Rannveig Oddsdóttir.
Í hálfmaraþoni karla sigraði Liam Tilton á tímanum 01:07:50. Í öðru sæti var Davíð Freyr Magnússon og í þriðja sæti var Atli Jasonarson.
Í 10 kílómetra hlaupi kvenna sigraði Íris Dóra Snorradóttir á tímanum 37:29. Í öðru sæti var Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers og í þriðja sæti var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir.
Í 10 kílómetra hlaupi karla sigraði Baldvin Þór Magnússon á tímanum 32:13. Í öðru sæti var Viktor Orri Pétursson og í þriðja sæti var Youssef El Fahm frá Marokkó.
Einnig var haldið skemmtiskokk þar sem hlauparar gátu valið um 1,4 km eða 3 km. Ungir sem aldnir hlupu þar braut fulla af furðuverum, boðið var upp á froðudiskó og tónlistaratriði og stemningin var gríðarlega mikil.
Söfnuninni á hlaupastyrkur.is er nú lokið og söfnuðust alls yfir 306 milljónir króna, sem er magnaður árangur. Með því fór heildarsöfnunin á hlaupastyrkur.is vel yfir 2 milljarða króna frá því að söfnunin hófst árið 2006. Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í söfnuninni og lögðu góðum málefnum lið.
Íþróttabandalag Reykjavíkur þakkaði þátttakendum, samstarfsaðilum, áhorfendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem tóku þátt í að skapa þennan frábæra viðburð.











