Reykjavíkurleikunum 2027 hefur verið aflýst.

10. nóvember 2026

Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir (RIG) verða ekki haldnir árið 2027. Ákvörðunina tók stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur í ljósi aukins kostnaðar og fyrirhugaðs niðurskurðar í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Ákvörðunin var ekki léttbær ef horft er til hlutverks leikanna sem vettvangs fyrir alþjóðlega keppni fyrir afreksfólk okkar á heimavelli

Reykjavíkurleikar hafa verið haldnir árlega frá árinu 2008 og skapað mikilvægan vettvang fyrir fjölbreyttar íþróttagreinar og alþjóðlega keppni á íslenskri grundu.

Þrátt fyrir hléið er ekki litið á ákvörðunina sem endalok leikanna. Vonir standa til að þeir geti snúið aftur árið 2028.

Sundmót á vegum Sundsambands Íslands verður þó haldið undir merkjum Reykjavíkurleikanna í janúar 2027, enda er undirbúningur þess þegar langt kominn.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna