ÍBR er Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

19. desember 2019

Íþrótttabandalag Reykjavíkur fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ fimmtudaginn 19.desember. Viðurkenningin var veitt á sama tíma og tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur 2019. Það var Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, sem afhenti Ingvari Sverrissyni, formanni ÍBR, viðurkenninguna. ÍBR er fimmta íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.

Fyrirmyndarhérað ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi og var samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2015. Viðurkenning fæst að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem ÍSÍ setur og gildir til tveggja ára. Til að gerast Fyrirmyndarhérað þarf meðal annars að útbúa handbók um skipulag og starfsemi og má skoða handbók ÍBR með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Ingvar Sverrisson og Lárus Blöndal

Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ.

Merki Fyrirmyndarhéraðs ÍSÍ

Merki Fyrirmyndarhéraðs ÍSÍ

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna