
Virkjum Breiðholt stuðlar að inngildingu barna af erlendum uppruna, börnum með fötlun, og börnum sem búa við fáttækt í Efra Breiðholti með því að auka þátttöku þeirra í íþrótta- og frístundastarfi. Samhliða því markmiði er unnið að því að jafna kynjahlutföll iðkenda í Efra Breiðholti.
Virkjum Breiðholt er samstarfs verkefni ÍBR og Suðurmiðstöðvar og er unnið í mikilli samvinnu og samtali við þau íþrótta- og æskulýðsfélög sem starfa nú þegar í Breiðholti eða hafa áhuga á því að hefja starf í Efra Breiðholt. Unnið verður að því að auka framboð starfs í hverfinu því horft er til þess að fjölbreyttara framboð geti höfðað betur til fjölbreyttari hóp barna.
Virkjum Breiðholt heldur úti styrktarsjóð sem er opinn fyrir umsóknum allt árið og sjóðsreglur má finna hér (hlekkur er hér). Hægt er að sækja um styrk með því að senda tölvupóst á Verkefnisstjóra verkefnisins, Önnu Margréti, á netfang annamargret@ibr.is.
Verkefnið er styrkt af Mennta- og Barnamálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg
Hér að neðan er hægt að sækja um styrk úr Breiðholtsverkefninu.
Úthlutunarreglur styrktarstjóðs Breiðholtsverkefnisins









