Úthlutun lottó nemur þeim hagnaði sem bandalagið fær til úthlutunar af rekstri Íslenskrar Getspár. Forsendur þess að nokkurt félag fái styrk frá ÍBR er að félagið sé fullgildur aðili að ÍBR, haldi félagatal og hafi farið að lögum bandalagsins hvað varðar aðalfundi, skil á ársskýrslum með endurskoðuðum reikningum, fullgildum iðkendaskýrslum og löglegri kosningu stjórnar. Skilafrestur á umsókn er 31. maí ár hvert og skal senda á ibr@ibr.is.