Yfirlýsing ÍBR um trans fólk og íþróttir

31. ágúst 2022

Íþróttabandalag Reykjavíkur tekur skýra afstöðu með trans fólki í íþróttum, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna, afreks- eða áhugafólk. 

Trans einstaklingar eiga að fá að iðka og keppa í sinni íþróttagrein á jafnréttisgrundvelli og það er undir íþróttahreyfingunni komið að vera inngildandi og finna leiðir fyrir öll að taka þátt og keppa. 

Trans íþróttafólk er hluti af íþróttasamfélaginu. Öll eiga rétt á því að njóta íþrótta án tillits til kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar eða kyneinkenna.

ÍBR vill að allir jaðarhópar upplifi sig velkomna í íþróttum. Íþróttir stuðla að betri líkamlegri og andlegri heilsu, eru frábær forvörn og hjálpa fólki að ná félagslegum tengslum. Því er mikilvægt að öll upplifi sig velkomin í íþróttum. 

ÍBR vinnur markvisst að því að gera íþróttastarfsemina í Reykjavík hinseginvænni. Öll íþróttafélög innan raða ÍBR munu fá hinseginfræðslu frá Samtökunum '78 á haustmánuðum, fyrir starfsfólk og þjálfara. Íþróttabandalag Reykjavíkur er með Regnbogavottun Reykjavíkurborgar og hefur allt starfsfólk ÍBR fengið hinseginfræðslu. 

ÍBR lýsir sig reiðubúið að vinna að því með sérsamböndum, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands að útbúa leiðbeiningar fyrir íþróttahreyfinguna um trans fólk í íþróttum sem verndar rétt allra til að stunda íþróttir.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna