Vel mætt á þing ÍBR

22. mars 2019

Miðvikudaginn 20.mars og fimmtudaginn 21.mars fór 49. þing Íþróttabandalags Reykjavíkur fram í Laugardalshöll. Góð mæting var á þingið en um 70 fulltrúar frá 29 félögum og ráðum tóku þátt í þingstörfum. 

Ingvar Sverrisson formaður ÍBR setti þingið en að setningarræðu lokinni ávörpuðu þau Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, og Hafsteinn Pálsson, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ, þingið. Báðir gestirnir þökkuðu íþróttafélögunum í Reykjavík fyrir þeirra frábæra starf og hvöttu þau áfram til góðra verka. Hafsteinn kallaði í lok ræðu sinnar uppá svið þau Gígju Gunnarsdóttur, ritara stjórnar ÍBR, og Ingvar Sverrisson, formann ÍBR, og veitti þeim gullmerki ÍSÍ.

Góðar umræður voru um fyrirliggjandi þingtillögur í nefndarfundunum á miðvikudagskvöldið og voru allar tillögur samþykktar samhljóða á seinni þingdeginum. Smellið hér til að skoða samþykktir þingsins.

Ingvar Sverrisson var endurkjörinn formaður ÍBR til næstu tveggja ára en hann hefur verið í því embætti síðan árið 2009. Örn Andrésson sem verið hefur varaformaður ÍBR undanfarin ár og setið í stjórn bandalagsins undanfarin 30 ár dró framboð sitt til áframhaldandi stjórnarsetu til baka á þinginu. Örn fékk miklar þakkir frá félögum sínum í stjórninni og þingfulltrúum fyrir frábært starf. Margrét Valdimarsdóttir kemur ný inní framkvæmdastjórnina en aðrir í stjórninni eru Björn M. Björgvinsson, Gígja Gunnarsdóttir, Guðrún Ósk Jakobsdóttir, Lilja Sigurðardóttir og Viggó H. Viggósson. Í varastjórn voru kjörnir þeir Haukur Haraldsson og Gústaf Adolf Hjaltason.

Hér á ibr.is má finna ársskýrslu og ársreikninga fyrir starfsárin 2017 og 2018 ásamt tillögum, samþykktum og fleiri gögnum þingsins.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna