Sandra Sigurðardóttir og Júlían J.K. Jóhannson eru íþróttafólk Reykjavíkur 2021

15. desember 2021

Íþróttafólk Reykjavíkur 2021

Íþróttakona og íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2021 var tilkynnt í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur, einnig var tilkynnt íþróttalið Reykjavíkur fyrir árið 2021.

Sandra Sigurðardóttir, Júlían J.K. Jóhannsson

Íþróttakona Reykjavíkur 2021 er Sandra Sigurðardóttir, knattspyrnukona í Knattspyrnufélaginu Val.

Sandra varð Íslandsmeistari með félagsliðinu sínu Val í sumar. Sandra er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu efstu deild kvenna með 314 leiki. Sandra er landsliðsmarkvörður og mun leika með kvennalandsliðinu í knattspyrnu á Evrópumeistaramótinu  sem fer fram í Bretlandi sumarið 2022. Sandra átti mjög gott tímabil í ár og stefnir á áframhaldandi afrek. Sandra er góð fyrirmynd og mikilvægur leikmaður í sínum liðum.

Við óskum Söndru Sigurðardóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2021.

 

Íþróttamaður Reykjavíkur 2021 er Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingarmaður í Glímufélaginu Ármanni.

Júlían varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í þungavigtarflokki á HM í kraftlyftingum þegar hann lyfti 380 kg, hann vann með miklum yfirburðum. Júlían varð einnig Evrópumeistari í réttstöðulyftu, einnig vann hann til brons verðlauna í samanlögðu þegar hann lyfti 1.105 kg. Árangurinn er einn besti árangur Íslendings á alþjóðamóti. Júlían vann einnig til gullverðlauna á Reykjavík International Games og er nú kominn með boð á heimsleikana í Alabama á næsta ári í Alabama (World Games 2022).

Við óskum Júlían Jóhanni Karli Jóhannssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2021.

Júlían J.K. Jóhannsson, Sandra Sigurðardóttir, Kári Árnason

Íþróttalið Reykjavíkur 2021 er meistaraflokkur karla í Knattspyrnu frá knattspyrnufélagi Víkings.

Víkingur varð Íslandsmeistari og Bikarmeistari karla í knattspyrnu. Víkingur er fimmta liðið á Íslandi til að vinna tvennuna, Íslands- og bikarmeistaratitlana.

Við óskum Víkingum til hamingju með titilinn Íþróttalið Reykjavíkur 2021.

Dagur B. Eggertsson, Júlían J.K. Jóhannsson, Ingvar Sverrisson, Lilja Sigurðardóttir

ÍBR óskar öllu íþróttafólki til hamingju með árangurinn á árinu.

 

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna