50. þing ÍBR fór fram 2. október

2. október 2021

62 fulltrúar mættu frá 26 aðildar félögum í Reykjavík mættu á 50. Þing ÍBR.

Fjölmargar tillögur voru lagðar fyrir á þinginu og mikil umræða skapaðist um tillögur um meðal annars siðamál og rafíþróttir.

Þingið samþykkti að rafíþróttir verði teknar undir hatt ÍBR og starfi innan vébanda þess líkt og aðrar greinar innan bandalagsins. ÍBR verði falið að móta stefnu um hvernig þetta geti orðið og hvernig þetta verði fjármagnað.

Kosið var í stjórn ÍBR, þar sem Ingvar Sverrisson gegnir áfram hlutverki formanns ÍBR

Í stjórn sitja:

  • Gígja Gunnarsdóttir
  • Lilja Sigurðardóttir
  • Viggó Viggósson
  • Guðrún Ósk Jakobsdóttir
  • Margrét Valdimarsdóttir
  • Björn M. Björgvinsson

Varamenn:

  • Haukur Þór Haraldsson
  • Brynjar Jóhannesson

Ingvar Sverrisson formaður ÍBR talaði um siðamál og rekstrarmál íþróttafélaga í ræðu sinni.

 "Við sem íþróttahreyfing þurfum að standa saman og vinna saman að því að laga hjá okkur ferla og uppræta allt ofbeldi, við fordæmum allt ofbeldi! Við þöggum ekki niður raddir þolenda og erum tilbúin til þess að gera betur."

Reykvískir Ólympíufarar fengu styrk frá ÍBR og ÍTR, sjá frekar um það hér.

Snorri Þorvaldsson og Sigríður Jónsdóttir fengu Heiðursviðurkenningu ÍBR

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna