Stærstu, glæsilegustu og fjölbreyttustu Reykjavíkurleikunum lokið

3. febrúar 2020

"Þetta voru stærstu, glæsilegustu og fjölbreyttustu Reykjavíkurleikarnir frá upphafi," sagði Gústaf Adolf Hjaltason, forseti undirbúningsnefndar 13. Reykjavíkurleikanna, sem lauk í gærkvöld með veislu mótshaldara, keppenda og annarra sem að leikunum komu í Laugardalshöll.

13. Reykjavíkurleikarnir hófust fimmtudaginn 23.janúar og lauk í gær með keppni í fjölmörgum greinum. Keppt var í 20 íþróttagreinum í ár. Metfjöldi erlendra gesta tók þátt í leikununum eða um 1000 af 45 mismundandi þjóðernum.  Íslenskir keppendur voru um 2000 og voru því þátttakendur um 3000, sem gerir leikana að einum viðamesta íþróttaviðburði sem fram hefur farið hérlendis.  Áhorfendafjöldi var meiri en áður í langflestum greinum og er ljóst að geysimikill áhugi er á leiknum meðal almennings.  RÚV sýndi frá keppni í 11 greinum og var þar bryddað uppá ýmsum nýjungum.  Aðrir fjölmiðlar gerðu leiknum einnig góð skil.  Eins vöktu nýjar greinar,  hermi-akstursíþróttir, enduro hjólreiðar, crossfit, klifur og pílukast verðskuldaða athygli.

Í badminton, dansi, frjálsíþróttum, júdó, listskautum, karate, ólympískum lyftingum og sundi var feikna sterkt erlent íþróttafólk á meðal keppenda ásamt flestu af besta íþróttafólki okkar Íslendinga. Í kraftlyftingum voru bæði heims- og Evrópumeistarar á meðal þátttakenda og þar var líka eitt heimsmet slegið. Í keilu kepptu erlendir atvinnumenn við íslenska áhugamenn.  Fjöldi Íslands- og mótsmeta voru auk þess sett í mörgum greinum.

Fjölmargar myndir frá keppninni síðustu tvær helgar má finna hér á Facebooksíðu leikanna. Velkomið er að nota þær í fjölmiðlum ef ljósmyndara er getið. Einnig er hægt að útvega þær í hærri upplausn ef þess er óskað.

Haldið var uppá góðan árangur og vel heppnaðar mótshelgar sunnudagana 27. janúar og 2. febrúar í Laugardalshöll. Þar fengu stigahæstu einstaklingarnir eða þeir sem voru valdir bestir í hverri íþróttagrein viðurkenningu og má sjá lista yfir þá hér að neðan.

Reykjavik International Games
Besta íþróttafólkið 2020 

Badminton
Fathurrahman Fauzi, Indonesia
Rachel Sugden, Scotland

Badminton unglinga
Andri Broddason, Iceland
Júlíana Karitas Jóhannsdóttir, Iceland

Borðtennis
Ellert Georgsson, Iceland
Nevene Tasic, Serbia

CrossFit
Ingimar Jónsson, Iceland
Sandra Hrönn Arnardóttir, Iceland

Dans
Artem Semerenko, Kyrgyzstan
Valeriya Kachalki, Kyrgyzstan

Enduro hjólreiðar
Gestur Jónsson, Iceland
Þórdís Björk Georgsdóttir

Frjálsíþróttir
Hlynur Andrésson, Iceland
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Iceland

Hermiakstur
Karl Thoroddsen, Iceland

Hjólreiðar brekkusprettur
Agnar Örn Sigurðarson, Iceland
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, Iceland

Júdó
Zaza Simonishvili, Iceland
Ingunn Sigurðardóttir, Iceland

Karate
Joby Wilson, England
Sonia Ventura Garcia, Spain

Keila
Hafþór Harðarson, Iceland
Danielle McEwan, USA

Klifur
Kjartan Jónsson, Iceland
Hjördís Björnsdóttir, Iceland

Kraftlyftingar
Kimberly Walford, US virgin islands
Viktor Samúelsson, Iceland

Listskautar
Nikolaj Mölgaard Pedersen, Denmark
Marianne Stålen, Norway

Ólympískar lyftingar
Tim Kring, Denmark
Mille Sögaard, Denmark

Pílukast
Páll Árni Pétursson, Iceland
Ingibjörg Magnúsdóttir, Iceland

Rafíþróttir
Garðar Snær Björnsson, Iceland

Skotfimi
Ívar Ragnarsson, Iceland
Jórunn Harðardóttir, Iceland

Skvass
Róbert Fannar Halldórsson, Iceland

Sund
Anton Sveinn McKee, Iceland
Mie Nielsen, Denmark

Taekwondo
Ágúst Kristinn Eðvarðsson, Iceland
Tinna María Óskarsdóttir, Iceland

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna