Ferðastyrkir - umsóknarfrestur til 13.janúar

9. janúar 2020

Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019. Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 13. janúar 2020.

Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019. Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar/mars.

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.

Merki ÍSÍ og Ferðasjóðs íþróttafélaga.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna