Samskiptaráðgjafi

14. júlí 2020

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs 

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs tók til starfa á vormánuðunum. Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og/eða æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi.

Starfi samskiptaráðgjafa sinnir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, klínískur sálfræðingur, með aðsetur í húsnæði Domus Mentis- Geðheilsustöðvar. Hægt er að hafa beint samband við hana og er hún með símatíma alla þriðjudaga kl. 10-11, í síma 839-9100. Utan þess tíma er hægt að hringja í símanúmerið en ekki alltaf öruggt að ná samtali. Einnig er hægt að senda tölvupóst á sigurbjorg@dmg.is sem verður svarað eins fljótt og hægt er.

Markmið samskiptaráðgjafa

Samskiptaráðgjafi hefur það markmið að auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Markmiðið er að allir geti tekið virkan þátt á sínum vettvangi og jafnframt leitað sér aðstoðar eða leitað réttar síns vegna atvika og misgerða sem hafa átt sér stað án þess að óttast afleiðingar. 

Hverjir geta leitað til samskiptaráðgjafa?

Þjónusta og ráðgjöf samskiptaráðgjafa stendur öllum þeim til boða sem tilheyra skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi á landinu. Til samskiptaráðgjafa er hægt að leita með mál er varða andlegt-, líkamlegt- og kynferðislegt ofbeldi og áreitni, einelti og önnur sambærileg tilvik sem hafa komið upp á vettvangi íþrótta- eða æskulýðsstarfs. Einnig mun samskiptaráðgjafi koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu í þessum málaflokkum.

Aðstoðin er þér að kostnaðarlausu

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs er bundinn trúnaði og innheimtir ekki gjald fyrir þjónustu sína. Hann starfar samkvæmt samningi mennta- og menningarmálaráðuneytis og Domus Mentis – Geðheilsustöðvar 

Heimasíða samskiptaráðgjafa er samskiptaradgjafi.is og mun hún þjóna sem upplýsinga- og fræðslusíða starfsins. Hægt er að setja sig í samband við samskiptaráðgjafa í gegnum síðuna, tilkynna atvik og fá ráðgjöf eða aðrar upplýsingar.

ÍBR hefur unnið mikla vinnu í málaflokknum. Við hvetjum ykkur til að skoða það efni sem hér á síðunni. 

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna