Grunnskólamót í Osló

19. maí 2017

Þjálfarar og fararstjórar í ferðinni til Osló

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hefur verið haldið árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár. Í ár verður mótið haldið í Osló og er þetta 69.mótið. Frá upphafi hafa höfuðborgirnar Kaupmannahöfn, Osló, Helsinki og Stokkhólmur tekið árlega þátt en Reykjavík tók fyrst þátt árið 2006. Reykjavík hefur tvisvar sinnum haldið mótið, árið 2011 og árið 2014.

Í úrvalsliði Reykjavíkur sem tekur þátt í mótinu er 41 keppandi, fjórir þjálfarar og tveir fararstjórar. Keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur eru 15 leikmenn í knattspyrnu drengja (14 ára), 10 leikmenn í handknattleik stúlkna (14 ára), 8 drengir og 8 stúlkur í frjálsum íþróttum (13-14 ára). Þjálfarar hópsins eru með margra ára reynslu í þjálfun og menntaðir íþróttakennarar. Farastjórar hópsins eru starfsmenn Íþróttabandalags Reykjavíkur sem jafnframt hafa umsjón með undirbúning og framkvæmd ferðarinnar. Smelltu hér til að skoða lista yfir úrvalslið Reykjavíkur 2017.

Hópurinn heldur til Noregs sunnudaginn 28.maí en keppni hefst mánudaginn 29.maí. Keppni mun standa yfir í fjóra daga og svo verður flogið heim föstudaginn 2.júní. Smelltu hér til að skoða dagskrá reykvíska hópsins.

Fregnir af gengi reykvíska hópsins verða settar reglulega á Facebook síðu ÍBR og samantekt í mótslok hér á ibr.is.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna