Góður hópur á grunnskólamóti

2. júní 2018

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2018 fór fram í Kaupmannahöfn 27.maí til 1.júní. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár og því var haldið uppá 70 ára afmæli þess í ár. Keppt var í handknattleik stúlkna, knattspyrnu drengja og frjálsíþróttum beggja kynja.

Reykvíski hópurinn stóð sig vel bæði innan vallar og utan og var sér og sínum til sóma á mótinu. Bæði handbolta stúlkurnar og fótbolta drengirnir voru í 3.sæti mótsins og frjálsíþróttastúlkurnar í 4.sæti og drengirnir í 5.sæti. Smellið hér til að finna lista yfir lið Reykjavíkur. 

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2018, Reykvíski hópurinn í fótbolta
Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2018, Reykvíski hópurinn í handbolta
Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2018, Reykvíski hópurinn í frjálsum á hlaupabrautinni

Samstarfsaðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna