Ferðasjóður - umsóknarfrestur til 9. janúar

27. desember 2016

Mynd af flugvél Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli

Forsvarsmenn íþróttafélaga í Reykjavík eru hvattir til að sækja um styrk í Ferðasjóð íþróttafélaga hjá ÍSÍ.

Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót á árinu 2016 rennur út á miðnætti mánudaginn 9. janúar 2017. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn. Til úthlutunar að þessu sinni eru 97 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar.

Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér.

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.

Styrktaraðilar

  • Merki ÍSÍ
  • Merki UMFÍ
  • Merki Reykjavíkurborgar
  • Merki ÍTR
  • Merki Íslenskrar Getspár
  • Merki Getrauna