| Reglugerð Verkefnasjóðs ÍBR |
|
|
| Mánudagur, 17. mars 2008 16:21 |
|
Verkefnasjóður Íþróttabandalags Reykjavíkur veitir styrki til útbreiðslu -og átaksverkefna í íþróttum í Reykjavík. Tekið er á móti umsóknum allann ársins hring og skal fylgja umsókn lýsing á verkefninu auk fjárhagsáætlunar en nánari lýsingu á innihaldi umsóknar er að finna í 5. grein reglugerðar um sjóðinn. 1. Grein: Verkefnasjóður Héraðssambandsins ÍBR er sjóður til styrktar útbreiðslu og átaksverkefnum í íþróttastarfi í Reykjavík. Úthlutun skal sérstaklega taka mið af barnastefnu ÍBR og jöfnum möguleika allra til íþróttaiðkunar. 2. Grein: Fjárframlag ÍBR til sjóðsins skal árlega nema að lágmarki 5 miljónum króna á verðlagi 1. júní 2004 eða í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun ÍBR þings. Sjóðstjórn er heimilt að leita eftir viðbótarfjármagni frá öðrum aðilum. 3. Grein: Stjórn sjóðsins skipa 3 menn úr stjórn ÍBR, og skulu þeir valdir á fyrsta fundi nýskipaðrar stjórnar og sitja fram að næsta ÍBR þingi. Formaður almennings- og útbreiðslusviðs skal vera formaður sjóðsstjórnar. 4. Grein: Umsækjendur skulu vera aðilar að ÍBR, félög eða einstakar deildir félaga. Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda ÍBR, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Reykjavik til hagsbóta. 5. Grein: Í umsóknum skal tilgreina: 1. Heiti umsækjanda.
5. Upphæð sem sótt er um. 6. Grein: Sjóðsstjórn metur hverja umsókn til samþykktar eða synjunar. Verði umsókn samþykkt til styrkveitingar skal sjóðsstjórnin ákveða hversu háan styrk viðkomandi verkefni hlýtur Styrkveitingar, sem sjóðstjórn ákveður, skulu bornar undir stjórn ÍBR til staðfestingar. Umsækjanda skal sent rökstutt svar við umsókninni. Sjóðsstjórn ákveður fyrirkomulag hvers styrks. Styrkur getur verið í formi peninga og / eða þjónustu og vinnuframlags starfsmanna ÍBR. Greiðsla styrks fer fram í verklok gegn afhendingu skýrslu frá styrkþega um verkefnið. 7. Grein: Reglugerð þessi tekur gildi þegar stjón ÍBR hefur staðfest hana og gildir þar til stjórn ÍBR ákveður annað. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 10. nóvember 2008 12:32 |