| Reglur ÍBR og ÍTR um styrki vegna æfinga og keppni |
|
|
| Mánudagur, 17. mars 2008 16:19 |
|
REGLUR ÍBR OG ÍTR UM STYRKI VEGNA AÐSTÖÐU 1. Markmið Aðalmarkmiðið með æfinga- og keppnisstyrkjum ÍBR og ÍTR er að kostnaður vegna aðstöðu til íþróttaiðkunar barna og unglinga verði ekki borinn af þeim eða fjölskyldum þeirra. Jafnframt er það markmið með styrkjunum að styðja við afreksíþróttir hjá reykvískum íþróttafélögum. 2. Styrkhæfni Styrkveiting nær til félags, sem er fullgildur aðili að ÍBR og hefur farið að lögum bandalagsins. Styrkhæf er leiga í íþróttamannvirkjum á vegum Reykjavíkurborgar (þ.m.t. íþróttasölum skóla), íþróttamannvirkjum íþróttafélaga og í öðrum mannvirkjum á vegum íþróttafélaga. Styrkurinn nær til keppni og til íþróttaæfinga vegna: a) Barna og unglinga 6 - 19 ára. b) Meistaraflokka í hóp- og einstaklingsíþróttum, þar sem jafnframt er barna- og unglingastarf. c) Meistaraflokka í hóp- og einstaklingsíþróttum sem keppa í efstu deild viðkomandi íþróttagreina. Æfingar og keppni fyrir öldunga í hóp- og einstaklingsíþróttum eru ekki styrkhæfar. Styrkur vegna æfinga miðast við ákveðinn mínútufjölda, fjölda þátttakenda (einstaklinga eða liða), í ákveðinni stærð rýmis miðað við aldur (sbr. fylgiskjal 1) og er háður skilyrðum um lágmarks iðkendafjölda (sbr. fylgiskjal 1). Gæta skal jafnréttis milli kynja og hópa. Sé um takmarkað magn æfingatíma að ræða mjög stóra hópa eða aðrar sérþarfir sem falla ekki undir almenn ákvæði þessarra reglna hefur ÍBR heimild til að nota aðrar viðmiðanir við úthlutun sbr. 9. gr. Heimaleikir reykvískra félaga í öllum héraðs- og landsmótum eru styrktir. Styrkhæfni annarra móta er háð samþykki ÍBR hverju sinni en almennt gildir sú regla að aðeins mót sem eru í umsjón reykvískra íþróttafélaga eru styrkt. Sé um að ræða aukinn kostnað vegna gæslu eða þrifa t.d. vegna fjölda áhorfenda skulu framkvæmdaaðili leiks og forstöðumaður mannvirkis semja um greiðslu vegna þess. Æfingatímar í öðrum bæjarfélögum en Reykjavík eru ekki styrkhæfir nema með sérstöku samþykki ÍBR og ÍTR. Æfingar landsliða sérsambanda í íþróttamannvirkjum í Reykjavík eru styrkhæfar með eftirfarandi hætti 1. ÍBR úthlutar landsliðum lausum tímum í mannvirkjum sem borgin á og rekur. 2. Íþróttafélög geta af og til gefið eftir sína æfingatíma fyrir landslið, bæði í eigin mannvirkjum og í mannvirkjum borgarinnar. Nýtt félag hlýtur styrk eftir eins árs veru innan ÍBR enda hafi þá verið gert ráð fyrir styrknum í framlagi borgarsjóðs til ÍBR og í fjárhagsáætlun ÍBR. 3. Styrktartímabil Styrkt æfingatímabil eru tvö: Vetrarönn 20. ágúst – 20. maí. Sumarönn 21. maí – 19. ágúst. Íþróttahús skóla Reykjavíkurborgar eru eingöngu opin yfir vetrarönn. Sækja verður sérstaklega til ÍBR um æfingar í íþróttamannvirkjum Reykjavíkurborgar á sumarönn. Í þeim tilfellum verða æfingar félaganna færðar saman í hús, þyki ástæða til þess., Sumaræfingar utanhúss í frjálsum íþróttum, golfi, knattspyrnu, skotfimi og tennis eru styrktar með sérstökum vallarstyrkjum. Vetraræfingar skíðamanna á skíðasvæðum eru styrkar með sérstökum styrkjum. 4. Æfingatími. Styrkhæfur æfingatími er að öllu jöfnu mánudaga til fimmtudaga kl. 15:00 - 22:30, föstudaga kl. 15:00-21:00, laugardaga kl. 9:00-18:00 og sunnudaga kl. 9:00-22:30 og öðrum opinberum frídögum sem eru styrkhæfir. Stundartafla skólanna hefur forgang í íþróttamannvirkjum Reykjavíkur. Á virkjum dögum skal leikur hefjast í síðasta lagi kl. 21.30, sérstaklega á þetta við um íþróttamannvirki skóla og ÍTR. Æfingatímar á stórhátíðum verða að öllu jöfnu ekki styrktir. Þessir dagar eru: Nýársdagur, Skírdagur, Föstudagurinn langi, Páskadagur, Annar í páskum, verkalýðsdagurinn 1. maí, Hvítasunnudagur, 17. júní, Þorláksmessa, Frídagur verslunarmann, Aðfangadagur jóla, Jóladagur, Annar í jólum, Gamlársdagur. Heimilt er að loka íþróttamannvirkjum Reykjavíkurborgar kringum stórhátíðar og í júlí. 5. Umsókn um styrk. Umsóknir íþróttafélaga vegna styrks til æfinga skulu berast ÍBR fyrir 15. maí vegna vetrarannar og 1. apríl vegna sumarannar. Í umsókn komi fram eftirfarandi: a) Áætlaður fjöldi flokka/hópa sem æfir. Sé æfingahópur skilgreindur á annan hátt en í reglugerð viðkomandi íþróttagreinar þurfa að fylgja nánari skýringar á samsetningu hópsins (aldur, getustig). b) Áætlaður fjöldi iðkenda í hverjum flokk/hóp. c) Áætlaður fjöldi liða/einstaklinga sem taka þátt í Reykjavíkurmóti og Íslandsmóti. ÍBR úthlutar æfingatímum til félags í samræmi við tiltekinn mínútufjölda og rými á viku fyrir hvern aldursflokk/hóp (sjá fylgiskjal 1). Ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi kemur til greina að fjölga tímum fyrir ákveðna flokka/hópa t.d. vegna mikils fjölda iðkenda. Einum og hálfum mánuði fyrir hvert tímabil skal liggja fyrir yfirlit um staðfesta tíma að hálfu ÍBR, hafi umsókn borist á réttum tíma. Félagið skal síðan skila inn til ÍBR æfingatöflu yfir æfingar félagsins með sundurliðun fyrir deildir og aldursflokka/hópa. Umsóknir sérsambanda vegna æfinga landsliða skulu berast ÍBR með góðum fyrirvara. Eftirfarandi vinnureglur skulu viðhafðar þegar óskað er eftir tímum til úthlutunar: 1. Sérsamband kannar hvort lausir tímar séu fyrir hendi í mannvirki. 2. Sérsamband sækir um tímana til ÍBR. 3. ÍBR úthlutar tímunum beint í mannvirkjum í eigu borgarinnar en skal hafa samráð við félög varðandi tímaúthlutanir í mannnvirkjum í þeirra eigu. 6. Nýting tíma. Að öllu jöfnu skal reynt að ná betri nýtingu á aðstöðu með því að skipta rými niður í minni hluta þar sem það er hægt. ÍBR ákveður slíka skiptingu (sbr. fylgiskjal 2). Sameina skal æfingar fámennra flokka/hópa. Íþróttafélagi ber að gæta þess að æfingatímar falli ekki niður og að fjöldi iðkenda hverju sinni sé í samræmi við lágmarkskröfur (sbr. fylgiskjal 1). ÍBR áskilur sér rétt til að meta hvað er góð nýting miðað við aðstæður í hverju tilfelli fyrir sig, að teknu tilliti til gildandi reglna. Tímar sem ítrekað eru illa nýttir verður ráðstafað annað ef ekki eru á því haldbærar skýringar. 7. Skráning og eftirlit. Fyrir hvert mannvirki skal fylla út mætingaskýrslur. Í mætingaskýrslu eru skráðar upplýsingar um iðkendafjölda, flokk/hóp (aldur), kyn og kappleiki eða keppni. Mikilvægt er að þær upplýsingar séu rétt færðar. Starfsmenn mannvirkja skulu fylla út skýrslu og taka niður fjölda iðkenda. Sé um að ræða breytingar á æfingatöflu, t.d. vegna keppni, skal koma fram skýring í mætingaskýrslu. Ennfremur skal í mætingaskýrslu skrá skýringar á ónýttum æfingatíma. Afrit af mætingaskýrslum skulu berast ÍBR mánaðarlega eða í síðasta lagi 5. virka dag næsta mánaðar. Mætingaskýrslurnar eru forsendur styrkveitinga. Einnig ber félagi að skila inn breytingum á æfingatöflum um leið og þær eiga sér stað. Ófullnægjandi eða rangar upplýsingar í mætingaskýrslum um nýtingu æfingaaðstöðu eða ráðstöfun æfingatíma á annan hátt en kveðið er á um í þessum reglum getur leitt til skerðingar eða niðurfellingar styrkja og innheimtu vegna ónotaðra tíma. Óheimilt er að framselja úthlutuðum æfingatíma/um án samþykkis ÍBR. Félögin verða að tilkynna tímanlega niðurfellingu á æfingum vegna móta og leikja, sérstaklega í íþróttamannvirkjum skóla og ÍTR. Fulltrúum ÍBR og ÍTR er heimilt að fylgjast með að notkun tíma sé í samræmi við æfingatöflu. 8. Gjaldskrá og greiðslur. ÍTR og ÍBR ákveða gjaldskrá í sameiningu. Uppgjör leigu miðast við gjaldskrá styrkhæfra tíma, einnig þegar um mannvirki í eigu annarra er að ræða. Uppgjör og greiðslur til félaga/mannvirkja fer fram að fengnum mætingaskýrslum síðasta mánaðar og æfingatöflum þar sem það á við. Enginn æfingatími er styrkhæfur nema sótt hafi verið um hann og hann samþykktur af ÍBR. Þetta á bæði við um æfingar og keppni, hvort sem er í íþróttamannvirkum Reykjavíkurborgar eða annarra aðila. Félögum er óheimilt að sækja um tíma í íþróttamannvirkjum eins og Egilshöll og Laugardalshöll án samþykkis ÍBR og ÍTR. 9. Almenn ákvæði. Um undantekningar eða frávik frá þessum reglum þarf að sækja sérstaklega til ÍBR/ÍTR. ÍBR og ÍTR annast framkvæmd þessarra reglna og verði ágreiningur um einstök atriði þeirra skal honum vísað til stjórna ÍBR og ÍTR. ÍBR er heimilt að uppfæra fylgiskjal 1 árlega ef þörf þykir. ÍBR er heimilt að uppfæra fylgiskjal 2 árlega með tilliti til breytinga í íþróttamannvirkjum í Reykjavík sbr. gr. 2. Samþykkt af stjórn ÍBR og ÍTR, í ágúst 2008. Þar með falla úr gildi reglur frá 2001 með áorðnum breytingum. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 03. júní 2010 13:22 |