|
1.gr.
Nafn sjóðsins er Slysatryggingarsjóður Íþróttabandalags Reykjavíkur. 2.gr. Tilgangur sjóðsins er að greiða hluta sjúkrakostnaðar sbr. 6. grein vegna íþróttafólks innan bandalagsins, 16 ára og yngri sem greitt hafa æfinga- og félagsgjöld á tjónsdegi, gegn slysum við íþróttaæfingar, á íþróttamótum, sýningum og kappleikjum á vegum viðkomandi íþróttafélags. 3.gr. Tekjur sínar fær sjóðurinn á þann hátt, að félög greiða í hann fyrir hvern iðkanda ákveðna upphæð, sem ákveðin er á þingi ÍBR. Jafnframt hefur sjóðurinn tekjur af vöxtum og verðbótum af bankainnistæðu. 4.gr. Slys skal tilkynna innan fjögurra vikna frá slysdegi. Óheimilt er að úrskurða bætur eftir umsóknum, sem ekki gefa fullnægjandi upplýsingar samkvæmt umsóknareyðublöðunum. 5.gr. Grundvöll bótaréttar má endurskoða hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum, sem orðið hafa. 6.gr. Sjúkrakostnaður sá, sem sjóðurinn greiðir að fullu er eftirfarandi: 1) Flutningur á slysadeild. 2) Gjald fyrir fyrstu komu á slysamóttöku og röntgendeild. 3) Gjald fyrir eina endurkomu. Ekki er greitt fyrir lyfjakostnað, leigu eða kaup á hjálpartækjum eða sjúkraþjálfun. 7.gr. Bætur skal yfirleitt inna af hendi til þess félags, sem um bæturnar sótti. Heimilt er þó að greiða til bótaþega sjálfs, enda leggi hann þá fram skriflega tilvísun viðkomandi félags. 8.gr. Slysatryggingarsjóðurinn skal jafnan vera undir stjórn og umsjá framkvæmdastjórnar ÍBR. Fé sjóðsins skal ávaxta í bönkum eða sparisjóðum, svo og með kaupum á verðbréfum, tryggðum með ríkisábyrgð. 9.gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið og skal sjóðsstjórn leggja fram endurskoðaða ársreikninga hans á ársþingi ÍBR. Endurskoðendur hans eru endurskoðendur ÍBR. 10.gr. Reglugerð þessari getur þing bandalagsins breytt og þarf til þess einfaldan meirihluta atkvæða. Samþykkt á þingi ÍBR í mars 2002.
|