Forsíða Styrkir Reglugerð fyrir grunnstyrk ÍBR
Reglugerð fyrir grunnstyrk ÍBR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 17. mars 2008 16:13
Grunnstyrkur ÍBR nemur þeim hagnaði sem bandalagið fær til úthlutunar af rekstri Íslenskrar Getspár (Lottó).

Forsendur þess að nokkurt félag fái styrk frá ÍBR er að félagið sé fullgildur aðili að ÍBR, haldi félagatal og hafi farið að lögum bandalagsins hvað varðar aðalfundi, skil á ársskýrslum með endurskoðuðum reikningum, fullgildum iðkendaskýrslum og löglegri kosningu stjórnar.

Grunnstyrkur skal greiddur út í tveimur hlutum. Fyrri greiðsla fer fram eftir 1. júní og sú seinni í ársbyrjun næsta árs. Hafi félag ekki uppfyllt fyrrgreindar forsendur er stjórn ÍBR heimilt að geyma úthlutun til viðkomandi félags þar til það hefur uppfyllt þær. Hafi félag ekki uppfyllt forsendurnar í árslok, missir það af úthlutun og skal það fé sem því hafði verið reiknað renna í þann pott sem er til skipta fyrir seinni greiðslu.

Grunnstyrkir eru sex. Þeir eru auðkenndir með bókstöfunum A, B, C, D, E og F. Hverfafélög fá jafnan styrk skv. grunnstyrk A. Deildir fá jafnan styrk skv. grunnstyrk B, hlutfallslegan styrk miðað við fjölda iðkenda skv. grunnstyrk C og hlutfallslegan styrk miðað við innheimt æfingagjöld iðkenda skv. grunnstyrk D. Grunnstyrkur E skiptist milli íþróttafélaga fatlaðra og grunnstyrkur F er til sérstakrar úthlutunar.

Þegar talað er um iðkendur í þessum reglum, er átt við börn og unglinga skv. skilgreiningu ÍSÍ.

I. Til að fá grunnstyrk þurfa félög að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

1. Félagið stundi virka barna- og unglingastarfsemi. Félagið sendi keppendur í opinber mót eða keppni í barna- og unglingaflokkum eða sanni á annan hátt virkni sína.
2. Félagið hafi stundað íþróttastarfsemi innan vébanda ÍBR í a.m.k. 3 ár.
3. Félag, sem tilheyrir öðrum heildarsamtökum en ÍBR og þar með ÍSÍ, skal ekki hljóta A styrk.

II. Grunnstyrk ÍBR er skipt eins og hér segir:

A. 20% skiptist milli hverfafélaga skv. skilgreiningu hér að neðan.
B. 20% skiptist milli deilda sem uppfylla skilyrði um virkt barna- og unglingastarf, hvort sem þær eru í hverfafélögum, öðrum fjölgreinafélögum eða sérgreinafélögum.
C. 13% skiptist milli deilda skv. III.B, í samræmi við fjölda iðkenda.
D. 40% skiptist milli deilda skv. III.B, í samræmi við innheimt æfingagjöld iðkenda.
E. 5% sem kemur til íþróttafélaga fatlaðra og skiptist milli þeirra í samræmi við innbyrðis samkomulag íþróttafélaga fatlaðra.
F. 2% sem stjórn ÍBR skal úthluta að hluta eða öllu leiti til félaga sem sérstaklega sækja um að fá úthlutað samkvæmt þessum lið. Heimilt er að úthluta til virkra félaga sem ekki eiga möguleika á að falla innan venjulegra skilgreininga þessara reglna og til félaga sem uppfylla öll skilyrði en bera sannanlega skarðan hlut frá borði.

III. Skilgreiningar:

A. Hverfafélag
1. Svæðisbundið félag, sem á eða hefur fengið úthlutað ákveðnu svæði í Reykjavíkurborg og stundar meginhluta starfsemi sinnar þar og í því hverfi. Gert er ráð fyrir, að félagið eigi, eða hafi aðgang að íþróttasvæði og íþróttahúsi í hverfinu.
2. Félagið stundi a.m.k. 3 íþróttagreinar, þ.m.t. minnst tvær hópíþróttir. Allar íþróttagreinarnar skulu vera öllum opnar í samræmi við aldurs- og kynflokkun.
3. Félagið sinni barna- og unglingastarfi grunnskólabarna í a.m.k. 3 íþróttagreinum (þar af minnst tvær vinsælar hópíþróttir) sem uppfylla kröfur um deild skv. lið B.
4. Félagið haldi uppi virkri starfsemi allt árið.

B. Deild
1. Sérgreinafélag eða íþróttadeild sem stundar a.m.k. eina íþróttagrein.
2. Hefur virkt barna- og unglingastarf fyrir drengi og stúlkur á grunnskólaaldri eftir því sem íþróttagreinin og aðrar aðstæður gefa tilefni til. Deild sem hefur minna en 20 virka og fullgilda iðkendur á grunnskólaaldri getur ekki talist með virkt barna- og unglingastarf.
3. Með virku starfi er átt við:
- að sérstaklega sé boðið upp á aðstöðu og þjálfun fyrir alla aldurshópa á grunnskólaaldri og tekið þátt í opinberum mótum eða viðburðum í viðkomandi grein,
- að boðið sé upp á sambærilega aðstöðu og þjálfun fyrir bæði kyn,
- að starfsemi allra aldurshópa sé í boði a.m.k. 6 mánuði á ári.
- að innheimt séu æfinga- eða félagsgjöld af iðkendum.

IV. Til að fá grunnstyrk ÍBR þurfa félög að senda skýrslu með eftirfarandi upplýsingum um hverja deild:
1. Lista með nöfnun og kennitölum iðkenda skv. skilgreiningu.
2. Yfirlit yfir innheimt æfingagjöld fyrir iðkendur skv. skilgreiningu.
3. Upplýsingum um félaga- og æfingagjöld í heild.
4. Stuttri lýsingu á virkni deildarinnar, þ.m.t. nöfn þjálfara, upplýsingar um æfingar og þátttaka í mótum eða opinberum viðburðum.

Skilafrestur á réttum og fullnægjandi upplýsingum vegna grunnstyrks er 31. maí.

Stjórn ÍBR er heimilt að meta umsóknir og hafna þeim að því tilskildu að hægt sé að sýna fram á án vafa að þær séu byggðar á röngum upplýsingum.

Greiðsla samkvæmt þessum reglum hefjast árið 2005.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 24. mars 2008 17:27
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700