| Reglugerð um ferðastyrki vegna Evrópukeppna og Norðurlandamóta félagsliða |
|
|
| Mánudagur, 17. mars 2008 16:12 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur veitir ferðastyrki til aðildarfélaga sinna vegna þátttöku í Evrópukeppnum og Norðurlandamótum félagsliða í meistarflokki enda hafi þau áunnið sér beina þátttökuaðild með úrslitum í Íslandsmóti eða Bikarkeppni sérsambands. Undanskilin er þátttaka í keppnum þar sem þátttökulið njóta styrkja frá Evrópusamböndum. Upphæð ferðastyrkja tekur mið af árlegu framlagi Reykjavíkurborgar. ÍBR ákveður viðmiðunargjald sem er föst upphæð, hvert sem ferðast er, fyrir hvern leikmann á leikskýrslu ásamt þjálfara og fararstjóra séu leikmenn fleiri en 4. Séu leikmenn færri en 4 er aðeins greitt fyrir annaðhvort þjálfara eða farastjóra. Séu báðir leikir leiknir í Reykjavík eða báðir erlendis fær félag 60% af viðmiðunargjaldi. ÍBR áskilur sér rétt til að meta hverja einstaka keppni ef vafi leikur á styrkhæfni. Sækja skal um styrk áður en ferð er farin. Umsókn skal fylgja fjárhagsáætlun. Við uppgjör þarf að leggja fram ljósrit af greiddum fargjaldareikningum eða flugmiðum frá Íslandi til keppnisstaðar. Verði félag/deild uppvíst að því að gefa rangar upplýsingar um ferðir getur stjórn ÍBR svipt viðkomandi aðila öllum styrkjum (húsaleigu- og ferðastyrkir) í 1-3 ár. Samþykkt á fundi stjórnar ÍBR þann 8. ágúst 2001. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 24. mars 2008 17:29 |