| Ferðastyrkir erlendis |
|
|
| Mánudagur, 17. mars 2008 16:10 |
|
Reglugerð um ferðastyrki vegna ferða erlendis
Markmið styrkjanna er að koma til móts við kostnað íþróttafélaga innan ÍBR eða félagsmanna þeirra, 13 ára og eldri, vegna keppnisferða erlendis. Heimilt er að styrkja ferðir á Heimsmeistaramót, Heimsbikarkeppni, Evrópumeistaramót, Norðulandameistaramót, Alþjóðleg mót landsliða, opinbera landsleiki, landskeppni og önnur þau mót sem stjórn ÍBR hefur samþykkt. Framkvæmdastjórn ÍBR er heimilt að styrkja ferðir Reykjavíkurúrvals unglingaliða sem farnar eru á vegum sérráða. Stjórn ÍBR er heimilt að meta styrkhæfni þeirra ferða sem á einhvern hátt eru styrktar af sérsambandi, ÍSÍ, Evrópusambandi eða alþjóðasambandi. Ferðir öldungaliða eða trimmflokka eru ekki styrkhæfar. Ferðir á alþjóðleg stigamót í einstaklingsgreinum verða aðeins styrkhæfar séu þátttakendur á meðal 3 efstu á landsvísu (styrkleikalisti/úrslit móta). Upphæð ferðastyrkja tekur mið af árlegu framlagi Reykjavíkurborgar. ÍBR ákveður viðmiðunargjald sem er föst tala, hvert sem ferðast er. Styrkurinn greiðist viðkomandi íþróttafélagi. Sækja skal um styrk áður en ferð er farin. Umsókn skal fylgja fjárhagsáætlun. Við uppgjör þarf að leggja fram ljósrit af greiddum fargjaldareikningum eða flugmiðum frá Íslandi til keppnisstaðar. Verði félag/deild uppvíst að því að gefa rangar upplýsingar um ferðir getur stjórn ÍBR svipt viðkomandi aðila öllum styrkjum (húsaleigu- og ferðastyrkir) í 1-3 ár. Samþykkt á fundi stjórnar ÍBR þann 8. ágúst 2001. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 03. júní 2010 12:47 |