Forsíða Styrkir Ferðastyrkir innanlands
Ferðastyrkir innanlands Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 17. mars 2008 16:09
Reglugerð um ferðastyrki vegna landsmóta

Íþróttabandalag Reykjavíkur styrkir ferðir aðildarfélaga sinna vegna ferða innanlands til þátttöku í Íslandsmóti eða bikarkeppni viðkomandi sérsambands. ÍBR styrkir ekki ferðir innan Höfuðborgarsvæðisins (Mosfellsbær – Hafnarfjörður). Meistaraflokkar fá aðeins styrki til ferða sem eru til staða utan 60 km radíusar frá Reykjavík.

Upphæð ferðastyrkja tekur mið af árlegu framlagi Reykjavíkurborgar. ÍBR gerir viðmiðunargjaldskrá vegna ferða flokka og einstaklinga, sundurgreint til einstakra staða á landinu.

Stefnt skal að, að styrkir til þeirra félaga sem reka barna- og unglingastarf verði allt að 35% af viðmiðunargjaldi vegna ferða meistaraflokka og 65% af viðmiðunargjaldi vegna yngri flokka. Styrkir þessir ná aðeins til greiðslu ferðakostnaðar en hvorki uppihalds- eða fæðiskostnaðar.

Þá skal stefnt að því að félag sem ekki er með unglingastarf en keppir á meistaraflokksgrundvelli og í deild ofar en neðsta deild innan viðkomandi sérsambands, geti fengið styrk sem nemur allt að 17,5% af viðmiðunargjaldi.

Umsóknum skal skilað fyrir 10. janúar vegna undanliðins árs. Í umsókn um styrki þarf að koma fram nafn félags, deildar, flokka, keppnisstaðir, hvernig ferðast er, fjöldi og dagsetning.

Verði félag/deild uppvíst að því að gefa rangar upplýsingar um ferðir getur stjórn ÍBR svipt viðkomandi aðila öllum styrkjum (húsaleigu- og ferðastyrkir) í 1-3 ár.

Samþykkt á fundi stjórnar ÍBR þann 8. ágúst 2001.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 01. apríl 2008 14:48
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700