|
Þriðjudagur, 25. mars 2008 15:29 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur leigir íþróttasali/velli til almennings og íþróttafélaga í Reykjavík.
Ef þú eða hópur á þínum vegum hefur áhuga á að leigja tíma af okkur eru þér velkomið að leggja inn umsókn. Meiri eftirspurn en framboð er eftir tímum til knattspyrnuiðkunar og því erfitt að fá tíma í það. Upplýsingar um lausa tíma, ef einhverjir eru, má finna hér.
Þau sem vilja sækja um tíma fyrir veturinn 2010-2011 þurfa að fylla út umsóknareyðublað og senda til ÍBR í gegnum netpóst eða fax. Umsóknarfresturinn 15. apríl 2010. Allir hópar þurfa að sækja um tíma, þrátt fyrir að hafa verið áður með sal.
Íþróttasalirnir sem ÍBR hefur til útleigu eru salir grunnskóla Reykjavíkur. Þeir sem fyrstir hafa aðgang að tímum eru íþróttafélögin innan ÍBR og síðan almenningur. Stærri salirnir (33x18) eru leigðir fyrir fótbolta og þeir minni(10x20) fyrir körfu, blak og annað. Salirnir er leigðir án áhalda eins og t.d. bolta. Íþróttasalir íþróttafélaganna eru alfarið í umsjón félaganna sjálfra.
Leigutímabilið Leigutímabilið er frá 1. september til 30. apríl. Innheimt er tvisvar sinnum á vetri fyrir haust- og vortímabil. Hausttímabil er frá 1. september - 18. desember og vortímabil er frá 4. janúar - 30. apríl. Tímum er úthlutað á hverju vori samkvæmt umsóknum. Þeir sem vilja hætta um áramót þurfa að tilkynna það fyrir 1. desember til ÍBR á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Frídagar yfir veturinn Frídagar á tímabilinu 2010-2011 eru um jól frá og með 20. desember til og með 2. janúar og páska frá og með 21.apríl til og með 25. apríl. Í einstaka tilfellum falla niður dagar vegna viðburða á vegum skólanna. Það er tilkynnt með góðum fyrirvara og ekki er greitt fyrir þá tíma sem falla niður.
Tímalengd Lágmarkstími er 50 mín að lengd. Ef tími fellur niður utan auglýsts tímabils endurgreiðum við hann eða reynum að útvega aukatíma síðar. Ef hópurinn nýtir ekki sína tíma er það á ábyrgð hópsins.
Greiðslur Greiðslufyrirkomulag. Sendir eru út innheimtuseðlar í upphafi hausttímabils og aftur í upphafi vortímabils. Mikilvægt er að greiða innheimtuseðla á gjalddaga. Einnig er hægt að greiða með greiðlukorti þar sem tekið er mánaðarlega af sama korti yfir allan veturinn.
Gjaldkeri hóps er skráður leigutaki og er hann ábyrgðarmaður hópsins gagnvart ÍBR. Hann innheimtir hjá sínu liði og sér um að greiða salarleigu í einu lagi samkvæmt innheimtuseðli frá ÍBR eða mánaðarlegar greiðslur á greiðslukorti.
Stærð og verð íþróttasalanna Salirnir eru misjafnlega stórir og henta því misjöfnum íþróttagreinum. Hægt er að fá upplýsingar um stærð sala undir yfirliti um lausa tíma.
Allar frekari upplýsingar í sambandi við leigu á íþróttahúsum er hjá ÍBR í síma 535 3700 eða senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. mars 2010 14:47 |