| Heiðursviðurkenningar |
|
|
| Þriðjudagur, 05. maí 2009 16:42 |
|
Sumarið 1954 var Halldór Pétursson listteiknari fenginn til að gera tillögur að merki fyrir ÍBR í tilefni 10 ára afmælis bandalagsins þann 31. ágúst. Skilaði hann nokkrum tillögum og varð núverandi merki fyrir valinu. Jafnframt var merkið útfært sem heiðursmerki, gullstjarna ÍBR, er ákveðið var að taka upp heiðranir fyrir störf að íþróttamálum í Reykjavík. Stjarna gerð úr silfri, en á henni miðri er mynd Ingólfs Arnarsonar úr gulli. Gullmerki ÍBR var úthlutað í fyrsta skipti á 45 ára afmæli ÍBR hinn 31. ágúst 1989.
Frekari upplýsingar um þá er hafa hlotið gullstjörnu / gullmerki og svo sjálf reglugerðin. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 06. maí 2009 15:29 |