Forsíða Fréttaveita Íþróttafréttir RÚV
Íþróttafréttir RÚV
RÚV - RSS

  • Sebastian Vettel á ráspól
    Sabastian Vettel hjá Red Bull liðinu verður á ráspól þegar keppendur verða ræstir í Ungverjalandskappakstrinum á morgun. Þetta er sjöunda sinn í ár sem Vettel er fremstur við ræsingu. Fernando Alonso ökumaður Ferrari varð þriðji en hann var 1,2 sekúndum lengur með hringinn en Vettel, og 0,8 sekúndum lengur en Webber. Þessir yfirburðir Red Bull félaganna Vettels og Webbers þykja mjög miklir í flókinni brautinni í Budapest. Athygli vakti að Jenson Button hjá McLaren og Michael Schumacher hjá Mercedes komust ekki í keppnina um 10 fremstu sætin. Við ræsingu verður Schumacher í fjórtánda sæti og Button í því ellefta.
    Málaflokkar: 
    Íþróttir Formúla 1


  • Ísland sigraði Ísrael
    Íslenska landsliðið í handbolta sem er skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann góðan sigur á Ísrael, 40 – 31, í öðrum leik sínum á Evrópumeistaramótinu í dag. Liðið hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 19-17, en stakk af í þeim síðari og vann níu marka sigur. Atkvæðamestur í Íslenska liðinu var Guðmundur Árni Ólafsson en hann skoraði 9 mörk. Ísland mætir Portúgal á morgun.
    Málaflokkar: 
    Íþróttir Handbolti


  • Fimmtug hlaupadrottning á EM í frjálsum
    Fimmtuga hlaupakonan Merlene Ottey varð í dag elsti íþróttamaðurinn til að keppa í EM í frjálsum íþróttum. Ottey, sem er fædd á Jamaíka, en keppir fyrir Slóveníu, tók þátt í 4 x 100 metra boðhlaupi. Slóvenía lenti í sjöunda sæti og var þar með úr leik.

      

    Málaflokkar: 
    Erlendar fréttir Evrópa Íþróttir Frjálsar


  • Khedira til Real Madrid
    Real Madrid hefur gert fimm ára samning við þýska miðjumanninn Sami Khedira.

    Khedira sló í gegn með þýska landsliðinu á heimsmeistarakeppninni í sumar.  Hann hefur leikið allan sinn feril með Stuttgart og er talið að spænska liðið hafi greitt um 12 milljón evrur fyrir kappann, eða sem nemur 1,9 milljörðum króna.  Khedira lék sinn fyrsta landsleik í september á síðasta ári og var ekki talið líklegt að hann myndi taka mikinn þátt í heimsmeistaramótinu.  Meiðsli Michael Ballack gerðu það hins vegar að verkum að Khedira var hent út í djúpu laugina og stóð hann sig með slíkri prýði að Jose Mourinho fékk hann til liðs við Real Madrid.

    Málaflokkar: 
    Íþróttir Fótbolti


  • Helga Margrét hætt keppni
    Helga Margrét Þorsteinsdóttir er hætt keppni í sjöþraut á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum.

    Helga Margrét var í 24. sæti eftir þrjár greinar en hætti svo keppni áður en 200 metra hlaupið átti að hefjast nú í kvöld.  Smávægileg meiðsli höfðu tekið sig upp hjá henni og þótti ekki áhættunnar virði að halda áfram keppni.  Þar með hafa allir íslensku keppendurnir lokið keppni á mótinu.  Ásdís Hjálmsdóttir var sú eina sem komst í úrslit en hún varð í 10. sæti í spjótkasti.

    Málaflokkar: 
    Íþróttir Frjálsar


Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700