|
mbl.is - Enski boltinn
|
Staðan og fréttir úr Ensku deildinni á mbl.is.
|
|
-
Aurelio samdi við Liverpool til tveggja ára
Heimildir Sky Sports um hugsanlega endurkomu Brasilíumannsins Fabio Aurelio til Liverpool reyndust á rökum reistar því í kvöld var greint frá því á vef Liverpool að leikmaðurinn hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
-
Aurelio aftur á Anfield?
Að því er heimildir Sky Sports fréttastofunnar herma þá er Liverpool að reyna að fá brasilíska bakvörðinn Fabio Aurelio aftur til félagsins en hann yfirgaf það í lok leiktíðarinnar.
-
Cahill með þrennu fyrir Everton
Ensku knattspyrnuliðin eru þessa dagana að leggja lokaundirbúning sinn á komandi leiktíð og spiluðu mörg þeirra æfingaleiki í dag. Tim Cahill var á skotskónum fyrir Everton sem lagði Norwich, 4:2, en ástralski miðjumaðurinn skoraði þrennu fyrir Everton í leiknum.
-
Chamakh skoraði í fyrsta heimaleiknum
Marouane Chamakh skoraði í sínum fyrsta heimaleik með Arsenal þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við AC Milan á Emirates mótinu sem hófst í Lundúnum í dag.
-
Gylfi skoraði fyrir Reading
Gylfi Sigurðsson gerði fyrsta mark Reading er liðið lagði Southampton 4:2 í æfingaleik í dag. Þetta var þriðji leikurinn í röð sem Gylfi skorar fyrir Reading en hann átti frábæru gengi að fagna með liðinu á síðustu leiktíð og var útnefndur leikmaður ársins hjá félaginu.
|