Mbl.is
mbl.is - Íþróttir
Fréttir úr íþróttaheiminum á mbl.is.

Morgunblaðið á Netinu
  • Saladuha sigraði með ótrúlegum yfirburðum
    Olha Saladuha frá Úkraínu stökk lengst allra í þrístökki kvenna á EM í frjálsíþróttum í Barcelona í kvöld. Hún stökk 14,81 metra en Simona La Mantia frá Ítalíu varð önnur en hún stökk 14,56 metra.

  • Thorkildsen í sögubækurnar eftir sigurinn á EM
    Andreas Thorkildsen frá Noregi sýndi enn og aftur að hann er yfirburðamaður í spjótkasti karla. Thorkildsen landaði gullverðlaunum á EM í Barcelona í kvöld og varði þar með Evrópumeistaratitilinn. Thorkildsen er þar með handhafi allra stóru titlana í þessari grein en hann er einnig heims-og ólympíumeistari og er hann sá fyrsti í sögunni sem nær þeim árangri.

  • Yanit kom fyrst í mark í 100 metra grindahlaupi
    Nevin Yanit frá Tyrklandi sigraði í 100 metra grindahlaupi kvenna á EM í frjálsíþróttum en þetta er í fyrsta sinn sem keppandi frá Tyrklandi sigrar í þessari grein.

  • Naumur sigur hjá Mikhnevich í kúluvarpinu
    Andrei Mikhnevich frá Hvíta-Rússlandi rétt marði sigur í kúluvarpi karla á EM í frjálsum í kvöld en hann kastaði einum sentimetra lengra en Ólympíumeistarinn Tomasz Majewski frá Póllandi.

  • Soumaré kom á óvart og sigraði í 200 metra hlaupinu
    Myriam Soumaré frá Frakklandi kom gríðarlega á óvart í úrslitum í 200 metra hlaupi kvenna á EM í frjálsum kvöld. Soumaré kom einnig á óvart í 100 metra hlaupinu þar sem hún náði þriðja sætinu en hún gerði enn betur í 200 metrunum og sigraði á tímanum 22,32 sek.

  • Fyrsti sigur Pólverja í 800 metra hlaupi karla
    Marcin Lewandowski frá Póllandi sigraði í 800 metra hlaupi karla á EM í frjálsum í Barcelona í kvöld og er þetta í fyrsta sinn sem Pólverjar fagna sigri í þessari grein. Bretinn Michael Rimmer varð annar og Pólverjinn Adam Kszczot fékk bronsið.

  • Ennis best í sjöþrautinni
    Jessica Ennis frá Bretlandi setti mótsmet þegar hún sigraði í sjöþraut kvenna á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona. Ennis fékk 6.823 stig og bætti sig um 92 stig.

  • Franskur sigur í stangarstökki karla
    Renaud Lavillenie frá Frakklandi sigraði í stangarstökki karla í kvöld á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í Barcelona á Spáni. Hinn 23 ára gamli Lavillenie hafði töluverða yfirburði í keppninn en hann fór yfir 5,85 metra.

  • Ottey sú elsta á EM
    Hlaupadrottningin Merlene Ottey varð í dag elsti íþróttamaðurinn til að keppa á EM í frjálsum, en þá tók hún einn sprett fyfir Slóveníu í 4x100 metra boðhlaupi.

  • Ennis fyrst í sjöþrautinni
    Jessica Ennis frá Bretlandi er með forystu þegar tvær greinar eru eftir í sjöþruat kvenna á EM í Barcelona.

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700