| Ólympíumót fatlaðra hefst í Kína |
|
|
| Miðvikudagur, 03. september 2008 10:21 |
Þrír reykvískir íþróttamenn keppa fyrir Íslands hönd í Peking dagana 6.-17. september, þar af eru tveir sundmenn og einn kraftlyftingamaður. Ólympíumót fatlaðra er haldið á fjögurra ára fresti og er stærsti íþróttaviðburður sem fatlaðir taka þátt í. Þátttökuréttur í mótinu er ekki auðfenginn og samkeppnin mikil en íslenskir þátttakendur hafa jafnan staðið sig vel og oftar en ekki komið hlaðnir verðlaunum aftur heim.Fimm íslenskir íþróttamenn verða á meðal þátttakenda að þessu sinni í Peking. Sundfólkið Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir koma bæði úr ÍFR og eru að taka þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti. Eyþór keppir í 400 metra skriðsundi og 100 metra baksundi en Sonja keppir í 50 metra baksundi. Þau tvö hafa bæði verið á mánaðarlegum 30.000-kr styrk frá Afreksjóði Spron og ÍBR eins og fleira ungt og efnilegt íþróttafólk. Þá keppir kraftlyftingamaðurinn Þorsteinn Magnús Sölvason úr ÍFR í bekkpressu en hann hefur ekki tekið þátt í Ólympíumóti áður. Þorsteinn Magnús, sem er 36 ára gamall og er aldursforseti íslenska Ólympíumótshópsins, hefur þó nokkra reynslu af alþjóðlegum mótum og hefur meðal annars keppt á EM í bæði Frakklandi og Grikklandi. Hann hlaut styrk frá stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur upp á kr. 240.000- vegna undirbúnings og keppni á Ólympíumótinu. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. september 2008 11:50 |