| Afrek |
|
|
| Miðvikudagur, 27. ágúst 2008 14:03 |
|
ÍÞróttabandalag Reykjavíkur óskar öllum þátttakendum á Ólympíuleikunum til hamingju með góðan árangur. Eðlilega skiptust á skin á skúrir eins og tíðkast í íþróttum en í það heila ógleymanlegir leikar þar sem allir þáttakendurnir voru sjálfum sér og þjóðinni til sóma. Eins og undanfarin ár hefur Íþróttabandalagið með aðstoð SPRON stutt við bakið á ungum reykvískum íþróttamönnum. Sjálfsagt hefur sá stuðningur hvatt íþróttafólkið til afreka á alþjóðavísu. Seinni úthlutun ársins úr Afrekssjóði Spron og ÍBR verður nú í byrjun október og því ekki seinna vænna að sækja um í sjóðinn en umsóknarfrestur er til og með 15.september.
|
| Síðast uppfært: Mánudagur, 01. september 2008 09:59 |