Forsíða Fréttasafn ÍBR
Sumargjafir Íþróttabandalags Reykjavíkur 2008 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 21. apríl 2008 16:54

Að gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur sumarkomunni og gefur börnum í Grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir.

Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 en hefur verið endurtekið á hverju ári og nú hefur bæst við einn árgangur sem fengið hefur sumargjafir.
Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt.

Börn í öðrum bekk fá sippuband og börn í þriðja bekk fá bolta. Með sippuböndunum og boltum fylgir bæklingur með æfingum og leikjum.
Fjórða bekk er boðið á skauta í Skautahöllina í Laugardal eða í Egilshöllina í Grafarvogi. Nú í fyrsta sinn fá börn í fimmta bekk sumargjöf og er þeim boðið að taka þátt í skemmtiskokki Reykjavíkurmaraþons 23. ágúst n.k. Þau fá bækling um hlaupaþjálfun og eru hvött til að æfa sig fram að þeim tíma.

Sumargjöfunum er dreift á skólatíma Grunnskóla Reykjavíkur og er það mikilvægt samstarf. Það er von okkar að foreldrar taki þessu vel og aðstoði börn sín og hvetji þau til að æfa sig og taka þátt í því sem í boði er.

Síðast uppfært: Föstudagur, 25. apríl 2008 15:32
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700