Forsíða Fréttasafn ÍBR
Tomas Peterson á Íslandi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 18. apríl 2008 14:05

 

Tomas Peterson hélt fyrir okkur erindi um hvernig íþróttastyrkjakerfinu er háttað í Svíþjóð og svo hvaða áhrif fæðingardagur einstaklings hefur á landsliðsframa knattspyrnumanna í Svíþjóð. Fyrirlesturinn fór fram þann 10.apríl í Laugardalshöllinni og á hlýddu 35-40 stjórnendur íþróttafélaga í Reykjavík.


Í stuttu máli má segja að styrkjakerfið sænska byggist á því að bæjaryfirvöld leggja til mannvirki á meðan að ríkisvaldið borgar með hverjum iðkenda og svo einnig með hverri æfingu. Á síðustu árum hefur farið fram vinna til að einfalda kerfið og endurspeglaðist það í s.k. „Handabandi“(Handshake). Samningur ríkisvaldisins við íþróttahreyfinguna þar sem lagðir eru til 2 milljarðar sænskra króna og félögunum frjálst að gera það sem þau vilja við þessa peninga svo lengi sem þau uppfylla ákveðin skilyrði samfélagsins.

Yfirvöld gera því með öðrum orðum kröfu um að ákveðnu samfélagslegu hlutverki sé sinnt og þar er gerð krafa um jafnræði, lýðræði o.s.frv. Félögin verða að sýna fram á að sú vinna félaganna sem nýtur stuðnings yfirvalda skili sér með einum eða öðrum hætti til samfélagsins. Því þurfa félögin að finna jafnvægið milli keppnismiðaðra áhersla (competiton fostering)og svo þess að sinna lýðræðislegu hlutverki(democratic fostering).

Tomas sýnir fram á það að ef báðum hlutverkunum er sinnt nokkuð jafnt þá náist hámarksárangur í íþróttastarfinu. Fyrir því leggur hann fram niðurstöður rannsóknar sem segir í stuttu máli að A-landliðsmenn séu nánast aldrei fæddir á síðustu mánuðum ársins og því séum við að kasta frá okkur „hæfileikafólki“(g.r.f. að meðfæddir hæfileikar í íþróttum séu algerlega óháðir fæðingardegi) sem fætt er seint á árinu. Miðað við hans niðurstöður þá má halda því fram að við séum að kasta á glæ 40-50% af öllu hæfileikafólki einfaldlega sökum þess að við hömpum bráðþroska einstaklingum með einhverjum hætti. Það má því segja sem svo að við eigum einhvers staðar annan Eið Smára Guðjohnsen eða sterka hægri handar skyttu í handboltanum sem ekkert varð úr vegna þess umhverfis sem við bjóðum ungu íþróttafólki upp á. Má örþjóð eins og Ísland við því!

Leiðir til að bæta starfið og draga úr þessari þróun. Leiðirnar miðast allar við að auka fjölda hæfileikafólks og þjóna lýðræðislegu hlutverki:

1.
Halda iðkendum eins lengi og hægt er svo að við missum ekki hæfileikafólk.
2.
Verkefni við hæfi einstaklinganna á æfingunum en við getuskiptum alls ekki yngstu keppendunum þegar um keppni er að ræða. Við hömpum ekki einstaklingum vegna líkamsburða.
3.
Einstaklingsmiðuð markmið þar sem hver keppir við sjálfan sig og nær árangri óháð því hvort hann keppir í ákveðnum hóp eða ekki.
4.
Leggja áherlsu á keppni sökum þess að börnin vilja það en forðast það að einblína á siguráherslur. Börnin muna ekki hvort þau unnu eitthvað mót 9 ára gömul nema einfaldlega sökum þess að foreldrar og þjálfarar minna þau á það.
5.
Góður leiðbeinandi nær að draga fram það allra besta í íþróttafólki.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 06. ágúst 2008 16:08
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700