| Vel heppnuð íþróttaráðstefna í mars |
|
|
| Miðvikudagur, 26. mars 2008 10:23 |
|
Meðal fyrirlesara var Rolf Carlson, sænskur fræðimaður á sviði íþróttafélagsfræði, sem ræddi um nauðsyn þess að íþróttir á barna- og unglingsaldri taki mið af þroskastigi barnanna og eigi umfram allt að vera skemmtun. Forystumenn íþróttafélaganna eiga samkvæmt hans áliti að kynna félagsmönnum stefnu félagsins og þar á að vera skýrt kveðið á hverjar séu áherslur félagsins. Hvort það sé lögð áhersla á jafnt aðgengi allra iðkenda eða hvort áhersla skuli lögð á árangur. Þetta eru hlutir sem foreldrar þurfa að þekkja áður en barnið er skráð í íþróttafélagið. Rolf lagði líka á borðið rannsóknir sem sýna fram á að aðgengi iðkenda að íþróttaaðstöðu skipti veruleg máli. Það skipti sköpum að börn þurfi ekki að leita langt eftir íþróttaaðstöðunni. Hann heimsótti Fylkismenn í Árbænum og hampaði íþróttaaðstöðunni þar sökum tiltölulega jafns aðgengis allra í hverfinu. Fara of háar fjárhæðir í íþróttaaðstöðu félaganna á meðan aðstaða til almennrar iðkunnar er ekki eins góð? KSÍ sýndi ákveðið frumkvæði í þessum málum með sparkvallaátakinu en það fellur ansi vel að rannsóknum Rolf Carlson, þ.e. jafnt og gott aðgengi barnanna að íþróttaaðstöðu. Viðar Halldórsson, lektor í íþróttafélagsfræði HR, benti einnig á afar spennandi rannsóknir sem sýna fram á að það eina sem íþróttamaður getur verið viss um að skili árangri er ástríða fyrir íþrótttinni og skuldbinding. Það hefur sem dæmi ekki verið sýnt fram á að tæknilegir eða líkamlegir tilburðir á fyrri stigum íþróttaferilsins skili sér þegar til lengri tíma er litið. Með öðrum orðum þá er ekkert sem heitir áskapað, þó svo að þú sért dóttir fyrrum íþróttahetju, heldur er það áunnið.
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 09. maí 2008 12:24 |