Forsíða Fréttasafn ÍBR
Vinabæjarmót Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 25. mars 2008 14:47
Reykjavík á fjóra vinabæi á Norðurlöndunum. Þeir eru Turku í Finlandi, Aarhus í Danmörku, Bergen í Noregi og Gautaborg í Svíþjóð. Þessu norræna samstarfi er þannig háttað að borgirnar eru gestgjafar á svokölluðum Vinabæjarmótum til skiptis og borga þá fyrir alla gestina fæði og uppihald en þátttakendur borga sjálfir fargjaldið á áfangastað. ÍBR og ÍTR skipta með sér kostnaði við þetta samstarf.

Ákvörðun um allt skipulag og framkvæmd er í höndum mótshaldara. Hann ákveður einnig þær íþróttagreinar sem keppt er í. Föstu punktarnir eru íþróttakeppni í fjórum einstaklingsgreinum þar sem þátttakendur eru fjórir strákar og fjórar stelpur á aldrinum 12-14 ára auk tveggja fararstjóra. Þátttakendur eru ekki endilega þeir bestu úr hverri grein heldur einstaklingar sem hafa verið duglegir og samviskusamir í sinni íþrótt og geta einnig verið þátttakendur í hóp og tekið þátt í öllu því sem lagt er fyrir hverju sinni. Mótið er haldið aðra helgi í ágúst og stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags.
Síðast uppfært: Mánudagur, 21. apríl 2008 16:33
 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700