Forsíða Fréttasafn ÍBR
Vel heppnuð ráðstefna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 25. mars 2008 12:57

Fimmtudaginn 13. mars, fór fram íþróttaráðstefna á vegum ÍBR og ÍTR í húsi Orkuveitu Reykjavíkur. Dagskráin stóð frá hádegi fram á kvöld og að jafnaði hlýddu 40-50 manns á fyrirlesarana. Mikil ánægja virtist vera með fyrirlesarana og tóku þeir á málefnum er snerta flesta þá sem vinna að öflugu íþróttastarfi í Reykjavík.

Meðal fyrirlesara var Rolf Carlsson, sænskur fræðimaður á sviði íþróttafélagsfræði, sem ræddi um nauðsyn þess að íþróttir á barna- og unglingsaldri taki mið af þroska barnanna og eigi umfram allt að vera skemmtun. Forystumenn íþróttafélaganna eiga samkvæmt hans áliti að kynna félagsmönnum stefnu félagsins og þar á að vera skýrt kveðið upp úr með það hvort áhersla er lögð á jafnt aðgengi allra iðkenda eða hvort áhersla skuli lögð á árangur þrátt fyrir ungan aldur iðkenda.

 

Könnun

Til hvers notar þú heimasíðu ÍBR?
 

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700