Forsíða Fréttasafn ÍBR Grunnskólamót í Osló í maí
Grunnskólamót í Osló í maí Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 14:45

Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda 2012 verður haldið í Osló dagana 21.-24.maí næstkomandi. Mótið hefur verið haldið árlega á Norðurlöndunum frá árinu 1948. Reykjavík tók fyrst þátt í leikunum árið 2006 í Helsinki og hélt mótið í fyrsta sinn í Reykjavík árið 2011. Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur veg og vanda að skipulagningu og undirbúningi fyrir mótið fyrir hönd Reykjavíkurborgar í samvinnu við íþróttafélögin í Reykjavík og grunnskóla Reykjavíkur.


Keppt er í þremur íþróttagreinum á mótinu; knattspyrnu drengja, handknattleik stúlkna og frjálsum íþróttum drengja og stúlkna. Þátttökuborgir eru Helsinki, Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmur og Reykjavík. Hver borg er skipuð 47 manna hópi; 41 unglingur á aldrinum 12-14 ára, 4 þjálfarar og 2 fararstjórar.


Undirbúningur fyrir mótið er nú í fullum gangi og eru æfingar hafnar í þeim íþróttagreinum þar sem félög og grunnskólar eru búnir að tilnefna leikmenn í æfingahópa. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlandanna 2012.


Meðfylgjandi mynd er af reykvíska hópnum sem tók þátt í mótinu 2011.



 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700