Forsíða Fréttasafn ÍBR Vel heppnaðir Reykjavíkurleikar
Vel heppnaðir Reykjavíkurleikar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 23. janúar 2012 10:52

Fimmtu Reykjavíkurleikunum lauk í Laugardalshöll í gærkvöld á lokahátíð þar sem Páll Óskar Hjálmtýsson fékk alla viðstadda til að dilla sér á dansgólfinu. Leikarnir gengu vonum framar um helgina en um 2.400 íþróttamenn úr 16 íþróttagreinum tóku þátt, þar af um 400 erlendir gestir. Íþróttafólki í öllum greinum náði frábærum árangri í keppni helgarinnar og voru settir margir tugir Íslands- og mótsmeta.

Á lokahátíðinni í kvöld voru einn karl og ein kona í hverri íþróttagrein verðlaunuð sérstaklega fyrir árangurinn um helgina. Um var að ræða sigurvegara í hverri grein fyrir sig eða stigahæstu keppendurnar ef um margar keppnisgreinar var að ræða. Verðlaunahafarnir voru eftirfarandi:

Bogfimi
Rakul Dam, Tambar Færeyjum
Kristmann Einarsson, ÍFR

Frjálsar íþróttir
Aníta Hinriksdóttir, ÍR
Alexander Brorsson, Svíþjóð

Badminton
Margrét Jóhannsdóttir, TBR
Ólafur Örn Guðmundsson, BH

Keila
Rebecka Larsen, Svíþjóð
Robert Andersson, Svíþjóð

Dans
Hanna Rún Óladóttir, DÍK
Sigurður Sigurðsson, DÍK

Skylmingar
Noemie Kiefer, Luxemborg
Hilmar Örn Jónsson, Skylmingafélagi Reykjavíkur

Listhlaup á skautum
Ivana Reitmerova, Slóvakíu

Fimleikar
Kvennaflokkur: Gerpla
Karlaflokkur: Ármann

Júdó
Sigrún Elísa Magnúsdóttir, JR
Ljubisa Kovacevic, Serbíu

Ólympískar lyftingar
Christina Trier Ejstrup, Danmörku
Gísli Kristjánsson, Lyftingafélagi Reykjavíkur

Kraftlyftingar
Kathrine Bak, Danmörku
Carl Yngvar Christhensen, Noregi

Sund
Mie Östergaard Nielsen, Danmörku
Jakob Jóhann Sveinsson, Sundfélaginu Ægi

Sund fatlaðra
Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði
Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir

Skvass
Dagný Ívarsdóttir, Skvassfélagi Rvk
Róbert Fannar Halldórsson, Skvassfélagi Rvk

Borðtennis
Eva Jósteinsdóttir, Víking
Guðmundur E. Stephensen, Víking

Triathlon – Þríþraut
Karen Axelsdóttir, Ægir þríþraut
Hákon Hrafn Sigurðsson, 3-SH

Myndir frá keppnum helgarinnar eru komnar inná Facebook síðu leikanna og er von á fleiri myndum síðar í vikunni. Heimasíða leikanna er www.rig.is en þar er hægt að nálgast nánari upplýsingar um íþróttagreinarnar sem keppt var í o.fl.


Mynd: Afreksfólkið sem fékk viðurkenningu á lokahátið Reykjavíkurleikanna. Ljósmyndari Helgi Olgeirsson.

Síðast uppfært: Mánudagur, 23. janúar 2012 11:06
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700